Úrval - 01.03.1970, Síða 75
LAUMUF ARÞEGl
73
11.500 feta löngu flugbrautar, áður
en þær hófu sig til flugs. Við viss-
um líka, að þar stönzuðu þær sem
allra snöggvast, áður en þeim var
snúið við, og svo æddu þær á fullri
ferð eftir flugbrautinni og hófu sig
á loft, þegar þær voru komnar langt
niður eftir henni. Við vorum í skóm
með gúmsólum, svo að okkur mundi
reynast auðveldara að klifra upp
þessi risavöxnu hjól. Og við vorum
með kaðla til þess að binda okkur
fasta inni í hjólageymslunni. Við
höfðum líka troðið baðmull upp í
eyrun til varnar hinu æðislega ýlfri
þotuhreyflanna fjögurra. Og nú
lágum við þarna í einu svitabaði,
helteknir ótta, er hinni risavöxnu
flugvél var snúið við á enda flug-
brautarinnar. Útblástursstrokan
bældi grasið allt í kringum okkur.
„Við skulum hlaupa núna!“ hróp-
aði ég skyndilega til Jorge.
Við þutum út á flugbrautina og
æddum að hjólunum vinstra megin
einmitt á því augnabliki, er flug-
vélin var kyrr. Er Jorge tók að
klöngrast upp þennan 42 feta háa
hjólbarða, sá ég, að það yrði ekki
nóg rúm fyrir okkur báða í sömu
hjólgeymslunni. „É'g reyni hinum
megin!“ hrópaði ég til Jorge og þaut
af stað. Ég klöngraðist í flýti upp
á hjólin hægra megin. Og mér tókst
einhvern veginn að troða mér inn
í hjólgeymsluna, með því að sveigja
mig eins og slanga. Þar inni var
aldimmt. Hjólin tóku samstundis
að velta eftir flugbrautinni. Og ég
greip um einhvern útbúnað til þess
að detta ekki niður um opið. Ær-
andi hávaðinn í hreyflunum ætlaði
alveg að gera út af við mig.
Nú hóf flugvélin sig á loft, og
hin risavöxnu, tvöföldu hjól tóku
nú að hreyfast hægt í áttina að opi
hjólgeymslunnar. Þau voru brenn-
andi heit vegna núningsins við flug-
takið. Þau fóru nú að mjakast
lengra og lengra inn í geymsluna.
Ég reyndi að troða mér eins ofar-
lega og unnt var, er þau nálguðust
mig meira og meira. Svo greip mig
örvænting, og ég fór að spyrna í
þau með fætinum. En þau þrýstu á
móti með ofboðslegum krafti og
þrýstu mér ógurlega fast upp að
þaki geymslunnar. Einmitt þegar
mér fannst sem ég væri að kremj-
ast í sundur, hætti þrýstingur hjól-