Úrval - 01.03.1970, Page 125

Úrval - 01.03.1970, Page 125
BACH TÓNSKÁLD ALLRA TÍMA 123 ráðna ákvörðun, er hann tók við stöðu kórmeistará við St. Thomas- arskólann í Leipzig. Launin þar voru lægri og þjóðfélagsstaðan minna metin. Lífsskilyrði hans urðu því lélegri og skyldustörf hans erf- iðari og óþægilegri. Hann átti að sjá um orgelleik og kórsöng í tveim kirkjum í Leipzig, og þar að auki hafði hann minni háttar skyldum að gegna við tvær aðrar kirkjur. Hann kenndi latínu og var eftir- litsmaður kórdrengja. Ómegð hans óx, og átti hann nú erfiðara með að sjá fjölskyldu sinni farborða en áður. Eftir dauða Barböru konu hans giftist hann söngkonunni Önnu Magdalenu Wiilken árið 1721. Hún gerðist stjúpmóðir þeirra fjögurra barna hans, sem á lífi voru. Og svo ól hún honum 13 börn sjálf. KENNARI OG TÓNTÆKNI- SNILLINGUR Næstu 15 árin tókst Bach samt einhvern veginn að semja geysi- legan fjölda tónverka, bæði mess- ur, passíur, oratorio og mestan hluta þeirra 295 kantata, sem hann er álitinn hafa samið (af þeim eru nú 217 til). En áheyrendur voru samt enn ósnortnir af verkum hans. Þegar Sankti Mattheusarpassía hans var uppfærð í fyrsta sinni, hrópaði einn áheyrenda upp yfir sig í ör- væntingu: „Guð hjálpi okkur! Þetta gæti sem bezt verið ópera!“ Á efri árum sneri Bach sér smám saman frá samningu kirkjutónlistar og tók að einbeita sér að nýjum stíl, sem var jafnvel enn róttækari og lausari við útflúr og veraldleg- ur í hæsta máta. Hann virtist ein- ungis gera þetta sér til yndisauka. Hann hafði alltaf verið kennari, fyrst barna sinna og síðan ýmissa nemenda gegn kennslugjaldi. Hann var einn fyrsti nótnaborðskennar- inn, sem hóf notkun þumalfingurs í orgelleik og ráðlagði nemendum sínum að beygja fingurna, en hafa þá ekki beina. Hann sagði við nem- endur sína í tónsmíðum, að kontra- punktslínur ættu að líkjast fólki, sem er að tala saman, þ. e. hver þeirra ætti að segja heila setningu, Ijúka henni spyrjandi eða svarandi og þegja svo, þegar „hún“ (línan) hefði engu við að bæta. Verk þau, sem Bach samdi á sex- tugs- og sjötugsaldri, hafa að geyma alla þá reynslu, kunnáttu og tækni, sem hann hafði öðlazt á langri ævi. Þar er t. d. um að ræða Goldberg- tilbrigðin fyrir harpsichord, „Catec- hism-prelúdíurnar“ fyrir orgel og verk það, sem hann lauk aldrei við að fullu, „List fúgunnar". í ellinni hlaut Bach þó eitt sinn mikla viðurkenningu, sem segja má, að hafi verið hápunkturinn á ver- aldargengi hans. Þar var þó aðeins um einn einstakan atburð að ræða. Friðrik mikli Prússlandskonungur, sem var velhæfur tónlistarmaður, þótt um áhugamennsku eina væri að ræða, bauð honum til hirðarinn- ar í Potsdam. Konungur sendi strax eftir Bach, er hann var kominn til Potsdam, og hrópaði upp yfir sig í hrifningu: „Bach gamli er kominn!" Bach eyddi kvöldinu með konungi og hirð hans og gladdi konung geysilega með því að semja fúgu, grundvallaða á stefi eftir konung. Þegar Bach var kominn heim
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.