Goðasteinn - 01.03.1968, Side 58

Goðasteinn - 01.03.1968, Side 58
]ón R. Hjálmarsson: / Olafur Björnsson héraðslæknir Minning Ólafur Björnsson, héraðslæknir að Hellu, andaðist eftir stutta sjúk- dómslegu í Reykjavík að morgni föstudagsins 19. janúar 1968 og var lagður til hinztu hvíldar þar syðra mánudaginn 29. sama mán- aðar. Útförin fór fram frá Dómkirkjunni að viðstöddu miklu fjöl- rnenni. Einkum var áberandi mikill fjöldi fólks úr byggðum Rangár- þings, er kominn var um langan veg til að kveðja þenna ósérhlífna og ástsæla lækni sinn og votta honum síðustu virðingu. Við fráfall Ólafs Björnssonar á þjóðfélag okkar á bak að sjá vel menntuðum, fjölhæfum og skylduræknum embættismanni og Rangárþing miklum, d.uglegum og mannúðlegum lækni. Og allir, sem þekktu hann, voru samferðamenn hans, félagar og vinir, eru harmi lostnir við fráfall þessa gáfaða, þrekmikla og hugljúfa dreng- skaparmanns, á bezta aidri. Við erum sannarlega fátækari eftir. 56 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.