Goðasteinn - 01.03.1968, Side 65

Goðasteinn - 01.03.1968, Side 65
Þóiður Tómasson: Skyggnzt um bekki í byggðasafni XIII Hornið írá Skaftafelli , ; .ÍIí3 Á sólfögrum sumardegi, 1950, bar mig að garði systkinanna í Gular- ási í Landeyjum, Einars, Guðmundar, Guðnýjar og Þórunnar, er þar búa eftir föður sinn, Þorstein Guðmundsson frá Maríúbakka í Fljótshverfi. Þau tóku mér tveim höndum, og frá þeim flutti ég austur að Skógum hið bezta, sem þau áttu í eigu sinni, drykkjar- hornið góða frá Skaftafelli í Öræfum - og blessuð veri þau fyrir það. Frá örófi alda hafa drykkjarhorn fylgt drykkjusiðum og eru í röð merkustu og fegurstu gripa margra þjóða, Islendingar þar ekki undanskildir, þó svo hafi til tekizt, að glæsilegustu horn þeirra séu geymd utan landsteina. Seint á öldum breyttist hornatízka hér á landi. Horn hættu þá að ganga með borðum í veizlum en héldu þó áfram að hýsa drykk. Mörg gömul horn fengu botn, þar sem áður var barmur, og op, þar sem áður var iokaður stikill. Smiðir héldu áfram að gera drykkjar- horn, skreyta þau með skurði og búa þau málmi. Á þessum tíma höfðu ferðamenn horn í barmi eða farangri undir brennivín og ýmsir nefndu þau brennivínshorn. Önnur horn voru í tízku um sömu mundir, púðurhorn, og oft er erfitt að greina á milli þess, hvað er brennivínshorn og hvað er púðurhorn nema örugg arfsögn komi til. Godasteinn 63

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.