Vísir - 17.06.1944, Síða 3

Vísir - 17.06.1944, Síða 3
VÍSIR ÞJÓÐHÁTlÐARBLAÐ 3 Sljórnarráðið. konungur lagði til að Alþingi skyldi endurreist. Heima fyrir skiptust íslendingar í tvo flokka varðandi framkvæmd málsins, og mun því minna liafa áunnist, en hefði mátt gera, og svo fór að lokum að 8. marz 1843 voru sett fyrir- mæii um ráðgjafarþing Islend- inga, er fyrst kom saman árið 1845. Voru slík ráðgjafarþing háð i Reykjavík annað hvort ár. 5. janúar 1849 voru grund- vallarlög Danmerkur sett. Hafði Jón Sigurðsson þá þegar tekið foryztuna, gefið út Ný fé- lagsrit um nokkurt skeið og átt sæti á ráðgjafarþingunum. I. C. Lassen prófessor við Kaup- mannahafnarháskóla gaf í sér- stöku tilefni út rit um þessar nnindir varðandi samhand Is- Iands og Danmerkur, þar sem hann hélt þvi fram að ísland væri hluti af Danmörku, þann- ig'að grundvallarlögin skyldu gilda þar einnig. Jón Sigurðs- son ritaði skorinorðar en fræði- legar greinar um sainband landanna í Ný félagsril, og var hyggt úr því á þeim grundvelli, sem liann lagði þar og skýrði með söguleguin rökum og laga- legum túlkunum. Var svo efnt til þjóðfundarins 1851, sem haldinn var undir umsjá danskra hermanna, er spöruðu ekki viðbúnaðinn hér niðri við höfnina og víðar, enda hafðir til laks, ef þjóðfulllrúarnir skyldu verða of erfiðir viðfangs. Var af stjórnarinnar hálfu Iagt frumvarp fyrir fundinn, al- gerlega byggt á kenningum Lassens. -Við það sætti alger meirililuti fulltrúanna sig ekki, samdi og lagði fyrir fundinn sérstakt frumvarp, og sleit þá konungsfulltrúi fundinum.með þeim rökum, að málið hefði fengið ótilhlýðilega afgi’eiðslu, fundartímanum væri lokið, og þar eð auðsætt væri, að ekki yrði áfram haldið á sama grundvelli væri fundinum slit- ið. Þessu mótmælli Jón Sig- urðsson og aðrir fundarmenn svo sem frægt er orðið. Stjórnarskráin t87h. Nú virðist málið hafa verið lagt á hilluna um skeið, og loks árið 1867 var nýtt stjórn- lagafrumvarþ lagt fyrir þingið, en fékk ekki samþykki. Á sömu leið fór 1869 og var þá frum- varpið lakara orðið. Hinsvegar setti ríkisþing Dana og kon- ungur stöðulögin 1871, en Al- þingi mótmælti, en mæltist til við konung til vara að hann gæfi landinu stjórnarskrá. Árið 1874 var 1000 ára afmæli ís- lands byggðar haldið hátiðlegt og kom Kristján konungur 9. á hátíðina með fríðu föruneyti, og gaf þá Iandinu stjórnar- skrá er kom til framkvæmda 2. ágúst 1874. Stjórnarskrá þessi hafði verulegar breytingar í för með sér á stjórn málefna íslands. Samkvæmt auglýsingu nr. 1 dags. 14. júlí 1874, var ákveðið að stofna skyldi frá 1. ágúst þ. á. að telja sérstakt stjornar- ráð fyrir ísland, samkvæmt stjórnarskránni, en málin þar- með tekin undan dómsmála- ráðuneytinu og kirkju- og kennslumálaráðuneytinu, — þanpig að „öll sérstakleg ís- Ienzk málefni“ voru úr þessu afgreidd í hinu nýja ráðuneyti. Hins vegar fóru Danir eftir sem áður með utanríkismál, land- helgisgæzlu, æðsta dómsvaldið (liæstarétt) o. s. frv. Þá var ennfremur ákveðið að ný mynt- eining skyldi upp tekin, þ. e. krónan og giltu að því leyti sömu lög í Danmörku og ís- landi. Danska krónan varð hinn íslenzki gjaldeyrir. Með stjórnarskránni fengu íslend- ingar í hendur yfirstjórn eigin málefna og þá einvörðungu innanlandsmálefna flestra, með þeim undantekningum þó, sem að ofan greinir. Þótt íslenzk málefni væru tekin undan dómsmálaráðuneytinu danska, hafði dómsmálaráðherrann þó æðstu yfirstjórn þeirra mála með höndum, allt fram til árs- ins 1904, er ráðlierradómurinn var fluttur inn i landið. Ekki er óskemmtilegt að at- huga fyrstu fjárlög, sem lögð voru fyrir Alþingi þetta ár. Var gert ráð fyrir að tekjur myndu nema kr. 116,593,32, en þar af var langhæsti tekjuliður gjald af brcnnivíni, eða kr. 40.000.00. Eimdi þar enn eftir af fyrri til- lineigingu danskra kaupmanna að ftytja sem mest af óþarfa og skaðsemdarvarningi inn í landið, til þess að tryggja sér og danska rilcissjóðnum tekj- ur, en hyggja minna að hinu hvað landinu mátti verða til velfarnaðar og landsmönnum til ávinnings efnalega og tíma- bærra framfara. Styrkur til verklegra framkvæmda var: til viðhalds yfirréttarstofunni, á- halda o. fl. kr. 220, — til við- gerðar á Vestmannaeyjakirkju kr. 1600.00, til garðræktar kr. 600,00 og þar með punktum og basta. Framkvæmdir í Iandinu á undanförnum árum virðast hafa verið í nokkru samræmi við þetta, að öðru leyti en því ; Latinuskólinn hafði verið reistur hér, sem kostaði vafa- laust allmikið fé, en aðrar framkvæmdir munu ekki hafa verið teljandi um miðbik ald- arinnar. Alþingi fékk nú að því er hin innri málefni varðaði óskert löggjafarvald, en konungur hafði neitunarvald svo sem tíðkaðist í Danmörku. Þvi var nú skipt í deildir, efri deild og neðri og þingmenn urðu þrjá- tiu talsins, þar af 6 í efri deild, en 24 í neðri deild. Kosninga- réttarskilyrði voru nokkuð rýnikvuð, þannig að fleiri fengu nú að leggja lóð sitt á metaskálarnar en áður og nutu kjörgengis. Konur fengu ekki að njóta shkra rétt- inda og aldurstakmarkið var 25 ár. Ekki voru íslendingar á- nægðir með þessa stjórnarskrá, en héldu uppi kröfum sínum sem áður um frekari réttindi. Var efnt til Þingvallafundar nokkru eftir að stjórnarskráin kom til 1‘ramkvæmda og voru þar strax hafðaruppi kröfurum frekair forn landsréttindi og samþykktar einróma. Mattliías skáld Jochumsson, sem var maður friðsamur, vildi miðla inálum og ganga skemmra en hinir, en tillögur hans fengu engan byr og ekki nema at- kvæði hans sjálfs, og beigði hann sig i hrifningu fyrir þjóð- arviljanum svo sem skáldskap- ur hans þá ber vott um. Yrði of langt mál að greina frá öll- um kröfum á hendur Dönum i þessu efni og skal ekki út í það farið, en þó miðuðu þær allar að auknum mannréttindum og þjóðréttindum svo sem að lík- um lælur, en allar voru þær hyggðar á fornum réttindum þjóðarinnar og gerðum samn- ingum i samræmi við kenning- •ar Jóns Sigurðssonar. Sam- verkamenn hans og lærisveinar héldu merki hans á lofti eftir að hann féll frá og má af þeim nefna menn eins og Halldór Kr. Eriðriksson, Benedikt Sveins- son sýslumann, o. f 1., sem Alþingishúsið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.