Vísir - 17.06.1944, Page 6
6
VÍSIR
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐ
Frá ÞingvöH'jm.
gert konungi íslands ókleift,
að fara með vald það, sem
honum er fengið i stjórn-
arskránni, lýsir Alþingi yfir
því að það felur ráð.uneyti
Islands að svo stöddu með-
ferð þessa valds.“
2. '„Vegna þess ástands, sem nú
hefir skapast getur Dan-
mörk ekki rækt umboð til
meðferðar utanríkismála ís-
lands, samkvæmt 7. gr.
dansk-íslenzkra sambands-
laga, né landhelgisgæzlu
samkv. 8. gr. téðra laga, og
iýsir Alþingi þess vegna yfir
þvi, að Island tekur að svo
stöddu meðferð mála þess-
ara að öllu leyti í sínar
hendur.“
Ráðstafanir þessar þóttu
eðlilegar og sjálfsagðar jafnt
innan lands, sem utan, og komu
engin andmæli fram gegn
þeim, en öllu frekar samþykki
frá dönskum valdhöfum, —
beinlínis eða með þögn. Island
var svo hernumið mánuði sið-
ar af Rretum, og breytti það
enn nokkuð viðhorfum, —
sýndi ljóslega hve hagsmunir
íslands og Danmerkur voru ó-
skildir, ogrann það Ijós nú upp
fyrir flestum íslendingum, en
þurfti þó þrjár styrjaldir til,
sem allar rufu sambandið milli
íslands og Danmerkur.
Hinn 16. maí 1941 samþykkti
Alþingi, eftir að stjórnmála-
flokkarnir höfðu samið sín í
millum um afgreiðslu málsins,
svofelldar ályktanir:
1. Alþingi ályktar að lýsa yfir:
að það telur Island hafa öðl-
ast rétt til fullra sambands-
slita við Danmörku, þar sem
Island hefir þegar orðið að
taka í sínar hendur meðferð
allra sinna mála, enda hefir
Danmörk ekki getað farið
með þau mál, sem hún tók
að sér að fara með í umboði
íslands með sambands-
samningi Islands og Dan-
merkur 1918.
að: af íslands hálfu verði
elcki að ræða um endurnýj-
un á sambandslagasáttmál-
anum við Danmörku, þótt
ekki þyki að svo stöddu
tímabært vegna ríkjandi á-
stands, að ganga frá form-
legum sainbandsslilum og
endanlegri stjórnskipun rík-
isins, enda verði því ekki
frestað lengur en til styrj-
aIdar!oka.“
2. um æðsta vald i málefnum
ríkisins:
„Alþingi ályktar að kjósa
ríkisstjóra lil eins árs í senn,
seni fari með það vald, er
ráðuneyti íslands var falið
með ályktun Alþingis hinn
10. apríl 1940, um æðsta
vald í málefnum ríkisins.“
3. um stjórnskipulag Islands:
„Alþingi ályktar að lýsa yfir
þeim vilja sínum, að lýð-
veldi verði stofnað á íslandi
jafnskjótl og sambandinu
við Danmörku verður form-
lega slitið.“
Er þá óþarfi að rekja sögu
þessa frekar. Milliþinganefnd
var falið að undirbúa endan-
lega afgreiðslu sjálfstæðismáls-
ins, og var formaður liennar
Gisli Sveinsson forseti samein-
aðs Alþingis, en nefndin var
skipuð fulltrúum frá flokkun-
um ölIum.Samdi hún frumvarp
til stjórnskipunarlaga, sem ein-
vörðungu miðaðist við þær
breytinga, sem leiddu beint af
á stjórnarskránni vegna skip-
unar konungsvaldsins, þ. e.
breytingar, sem leiddu beint af
þvi að Island gerðist lýðvgldi
i stað konungdæmis. Hinn 25.
febrúar 1944 samþykkti Al-
þingi einróma niðurfelling
dansk-íslenzka sambandslaga-
sáttmálans frá 1918, en hinn
8. marz var stjórnarskrárfrum-
varpið afgreitt endanlega og
einróma af Alþingi.
Var þjóðaratkvæðagreiðslan
ákveðin'dagana 20.—23. maí og
hafa úrslit hennar orðið, sam-
Hulda:
Hugsað vestur.
/
Eitt brot af Islands bergi hörðu
í bjarma Vesturs rís.
ÞaS berg er auSþekkt allri jörSu,
þess efni menning kýs.
Ef einhver þrekraun á aS vinna
á upphaf sitt og styrk þau berglög minna,
svo íslenzk nöfn og ættin hraust
. í álfu nýrri veki traust.
I raun og örbirgS ísland mændi
á eftir mörgum hóp,
sem vestræn óbyggS aS sér hændi
og ættland nýtt þeim skóp.
En fregn um barna hreysti og hróSur
barst heim og gladdi ástartrygga móSur.
Nú veit hún bjart um vöggu og gröf
og vor og sumar bak viS höf.
Á óskastund, sem upp er runnin
um alfrjálst land og þjóS,
skal minnst á barna afrek unnin
og ást, — á VesturslóS,
a tryggo vio moourmaliö goða,
á mátt, er skapar virSing allra þjóSa.
Heill meiSi þeim, sem Island á.
I álfu Leifs hann vaxa má.
kvæmt bráðabirgðatölum, sem
fyrir liggja: Afnám sambands-
laganna: Já 70.725 (97,36%),
nei 370 (0,51%), auðir seðlar
og ógildir 1545 (2,13%). Lýð-
veldisstjórnarskráin: Já 69.048
(95.06%), nei 1042 (1.43%),
auðir seðlar og ógildir 2550
(3.51%). Samtals greiddu at-
. kvæði 72.640 eða 97,86% af
þeim, sem á kjörskrá voru. Lík-
legt er að lilutfallstalan reyn-
ist hærri, er landkjörstjórn hef-
ir endanlega yfirfarið, úrskurð-
að og athugað öll plögg, sem
fyrir liggja. Þjóðin sýndi að
hún kann að standa saman um
lieill sína og' hamingju, og sama
gerðu þingflokkarnir ávallt er
mest reyndi á. Hefir málið
þannig hlotið giftusamlega af-
greiðslu, sem er Alþingi, ríkis-
stjórn og þjóðinni til sóma.
Hafa þegar borist heillaóskir
varðandi úrslit málsins frá er-
lendum stórþjóðum, og sérstak-
ar ráðstafanir þegar verið gerð-
ar af þeim um skipun erind-
reka með sérstöku umboði til
að mæta við hátíðahöldin
vegna lýðveldisstofnunarinnar.
Spáir allt þetta góðu um fram-
tíð hins endurfædda íslenzka
lýðveldis.