Vísir - 17.06.1944, Page 31

Vísir - 17.06.1944, Page 31
VÍSIR — Þ.T/)ÐI IÁTÍÐ ARRL AÐ S1 Gamla Koiiipaniíð. Um aldamótin síðustu leit- uðu ýmsir efnilegir menn úr trésmiðastétt til útlanda til þess að afla sér sérmenntunar í iðn sinni. Var Jón Halldórsson einn þeirra, en fyrir honum ótti að liggja að verða mestur virðing- armaður sinna stéttarbræðra og sannkallaður sómi íslenzkrar iðnaðarmannastéttar. Hann framaðist "í Nóregi, Danmörku og Þýzkalandi og gerði, þegar heim kom, félag við nokkra starfsbræður sína. Það var stofnað 1905 og hlaut fyrst nafnið Sigurjón Ólafsson & Co., en árið 1908 var nafninu breytt í Jón Halldórsson & Co. Aðalstofnendur fyrirtækisins voru þeir Jón Halldórsson, Bjarni Jónsson frá Galtafelli, Jón Ólafsson og Kolbeinn Þor- steinsson. Varð fyrirtæki þeirra brátt hið vinsælasta og þeklct um allt land fyrir vandaðar vörur og hollráðar leiðbeining- ar til viðskiptamanna, enda má segja að með stofnun þess hafi verið stigið mikið og merkilegt spor í íslenzkum iðnaðarmál- um. Brátt fór svo, að húsrými lirmans varð allt of lítið, og réðist það þá í byggingu hús- sins nr. 6 við Skólavörðustíg, sem þótti mikil og voldug bygg- ing í þá daga. En sú bygging nægði eigi nema skamman tíma, og varð enn að stækka liana 1922 og loks að taka íbúðir í byggingunni fyrir vinnustofur nokkru síðar. Ekld leið á löngu áður en al- menningur hafði gefið fyrirtæk- inu nýtt nafn. Var brátt farið að tala af stolli og virðingu um „kompaniið“, og „Jón i Kom- paníinu" var Jón Halldórsson jafnan nefndur. Og þótt fyrir- tækið hafi hlotið nýtt nafn nú fyrir skemmstu og nefnist nú „Gamla Kompaníið h.f.“, þá er það raunar ekki annað, en stað- festing á heiti, sem því var snemma gefið og það hefir lengi borið í munni almennings. Framleiðsla kompanísins þótti ekki vera til neinnar skammar, enda stóðu að því menn, sem voru snillingar í sinni iðn. Áður bafði fátt' eitt verið smíðað af vönduðum hús- gögnum hér á landi, mestmegn- is höfðu hér aðeins verið smíð- uð óvönduð liúsgögn, en hin veigameiri og vandaðri keypt frá útlöndum. Það varð því eigi lítið metnaðarmál að geta fram- leitt fyrsta flokks húsgögn í Reykjavílc. Fyrirtækið réði brátt í þjónustu sína færustu menn og tók auk þess lær- linga, sem síðar urðu merkir menn í sinni iðn. Má telja að flestir vandvirkustu húsgagna- smiðir landsins hafi numið handverk sitt í kompaníinu eða starfað þar lengur eða skemur. Þangað til kompaníið tók til starfa var það alsiða, ef vanda þurfti til híbýla, að fá erlenda menn til að gera teikningar að húshúnaði. Þetta v.erk gat kom- paníið leyst af hendi óg það betur en margir útlendingar. Þegar Safnahúsið var reist liér í bænum, fékk kompaníið tæki- færi til að sýna hvað það gæti af höndum leyst, og má enn, eftir fjölda mörg ár, sjá og dást að hinum vönduðu og sterk- byggðu húsgögnum og húsbún- aði, er kompaniið smíðaði handa Landsbókasafninu og Þjóðskjalasafnniu. Má vafa- laust telja að sýnishorn þeirra gripa verði með því fyrsta, sem lagt verður til væntanlegu iðn- minjasafni, er var rnjög lijart- fólgið mál Jóni heitríum Hall- dórssyni, stofnanda kompanís- ins. Þá mætti einnig minnast á húsbúnað Eimskipafélagshúss- ins og Landsbankans, og eru þetta dæmi tekin af handahófi úr þeim fjölda bygginga, sem kompaníið hefir lagt til hús- gögn á liðnum tárum. Arni Skúlason útskrifaðist sem húsgagnasmiður úr kom- paníinu árið 1930. Honum lék hugur á að afla sér meiri þekk- ingar og reynslu, enda var hann kornungur maður, og því lagði hann leið sína til Svíþjóðar og Danmerlcur. Þar nam hann hús- gagnateikningu, fríteikningu, innanhúsbúnað og verkstæðis- vinnu. Kom hann lieim aftur 1933 og opnaði húsgagnavinnu- stofu í Mjóstræti. Þessa stofu rak hann til 1937, er Jón Hall- dórsson bauð honum að ganga í firmað Jón Halldórsson & Co. Var því um sama leyti breytt í hlutafélag. — Þótti Jóni það heillaráð, að fá ungan mann og dugandi í firmað og þar með nýtt blóð í reksturinn. Árið 1940 gekk enn annar ungur maður í firmað, Jóhann- es Bjarnason. Hann er ekki smiður, heldur vcrzlunarmaður. Lauk prófi úr Verzlunarskóla Islands vorið 1940 og gekk um haustið í firmað. Hann hefir með höndum framkvæmda- stjórn og fjármál, en Árni stjórnar fyrirtækinu í verkleg- um efnum. Nokkru áður var tekið til að panta njrjar vélar, hetri og fljót- virkari en þær, sem fyrir voru. Hafa vélarnar verið að smábæt- ast smiðjunni öll stríðsárin. En jafnframt hefir það komið í Ijós, að húsakostur er enn orð- inn of smár, og hyggur kom- paníið því enn einu sinni á hús- úyggingar. Meðal yngstu viðfangsefna kompanísins má nefna húsbún- að lianda Ctvegsbanka Islands og íslenzk húsgögn í fornum stíl, er smíðuð voru fyrir am- erísku heimssýninguna í New York 1940. Kompaníið liefir í tíu ár notið starfs Ejvinds Wiese, ágæts tréskera, og liefir því verið kleyft að framkvæma vandaðan skurð á beztu hús- gögnin. Kompaníið heldur hátt því mcrki, sem í uppliafi var sctt, að stuðla að vandaðri liús- gagnasmíði og smekklegum húsbúnaði. 1 sjálfu sér er starf þess tvíþætt, því að annars veg- ar framleiðir það sterk, algeng húsgögn í fjölsmíði, en hinsveg- ar dýrari liúsgögn og vandaðri eftir sérstöku vali viðskipta- manna. I því skyni hefir það á að skipa fullkomnu fyrir- myndasafni og teiknar einnig eftir hugmyndum viðskipta- manna. En að sjálfsögðu er slík vinna mildu kostnaðarsamari cn fjölsmíðin. Þetta hafa allir gert sér Ijóst, og það er ekki óalgengt, að fólk kaupi fjölsmíðuð húsgögn en bæti við einum eða fleiri grip- um, sérsmíðuðum. Því að allir keppa-að því að skapa sér heim- ili með persónulegum blæ og sérkennilegum. Gamla kompaníið verður á næsta ári fertugt. Þó eru á því engin cllimörk. Það er lifandi fyrirtæki og þróttmikið og sómi fyrir íslenzkan iðnað. Ilefir því livað eftir annað tekizt að sanna, að vér þurfum ekki að sækja vandaða smíði til útlanda og að sé efni fyrir hendi, þá skortir hér í landi hvorld verk- færi né verklægni. Vandaður stóll í rókókó-stíl, smiðaður í Gamla Kompaníinu að öllu leyti. Myndin er tekin úr grein um smíði stofunnar í „Tímariti iðnaðarmanna“.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.