Vísir - 17.06.1944, Side 54

Vísir - 17.06.1944, Side 54
54 VÍSIR ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ bandi við það flókið kerfi um niðurgreiðslur á verði landbún- aðarvara með fjárframlögum úr ríkissjóði til þess að halda vísitölunni í skefjum. Margt af þessu eru deilumál nú og verð- ur ekki frekar um það rætt. En þetta yfirlit um landbún- aðinn bendir til eins, sem ég vil að lokum vekja eftirtekt á. Með hverjum áfanga fram á leið, sem náðst hefir í sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar, hefir vaxandi bjartsýni gætt og nýtt átak verið gert landbúnaðinum til eflingar. Svo var það eftir þjóðhátíðina 1874, þegar Al- þingi fékk löggjafarvald. Svo var það einnig eftir 1903, þeg- ar ríkisstjórnin var flutt heim og bar ábyrgð gagnvart Alþingi, og svo var það eftir 1918 þegar fullveldi þjóðarinnar var viður- kennt. Nú er margt í óvissu um framtíð landbúnaðarins. For- ráðamönnum hans er það full- Ijóst. Búnaðarþing hefir nú starfandi milliþinganefnd til þess að gera tillögur um ýmis mest aðkallandi vandamál land- búnaðarins. Eg er þess fullviss, að um leið og við stígum loka- skrefið í sjálfstæðisbaráttu okkar út á við, þá muni allir unnendur landbúnaðarins stíga á stokk og strengja þess heit, að góðum gömlum norrænum sið, að nú þegar sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar er lokið og lýð- veldi er stofnað að nýju, þá verði gert átak, öflugra og á- kveðnara en nokkru sinni fyrr, til þess að efla landbúnaðinn sem mest, þjóðinni allri til far- sældar. Engin ]>jóð getur sótt fram á við og haldið menningu sinni í horfi, nema ræktun landsins og landbúnaðurinn þróist í fullu samræmi við aðra þætti þjóð- lífsins. Úi annálum 1 724: Um sumarið og vorið eldur uppi fyrir austan. I Julio urðu jarðskjálftar nokkriun sinnum, þó meiri í Árnessýslu. Iirapaði niður allur bærinn i Herdísar- vík, grandaði þó eigi fólki. Arngrímur Bjarnason, bú- andi í Krýsuvík, fyrriun Skál- holtsstaðar ráðsmaður, hafði farið á skipi til sölvatekju und- ir Krýsuvíkurbjargi; hrapaði úr því grjót í jarðskjálftanum, hvar af hann dó og tveir fylgj- arar hans. Vinnukona hans mjög lömuð komst af og aðrir tveir, sem af ofboði hlupu fram i sjó og náðu til skipsins. Um réttatíma drukknaði i Hvítá í Borgarfirði á Lengju- vaði Sigurður Jónsson á Ingj- aldslióli, þá í erindagerðum Odds lögmanns; meinast eigi ó- drukkinn, ])ar í fjórar reisur, að þarflitlu, reið yfir ána, hvað eftir annað, en í fimmta sinn hleypti hestinum suður í streng- inn og féll aftur úr hnakkinum við bakkann. Líkami hans fannst um veturinn eftir á góu, rekinn af sjó i Kóranesi hjá Straumfirði á Mýrum. ★ Við snögglega innkomu á Hafnarfjörð, seint í kauptíð, tveggja Hamborgarskipa, brá fólki svo við á Álfta- og Sel- tjarnarnesjum, að tóku að flýja. Amtmaðurinn, landfógetinn, vicelögmaður Niels Kier (er þá bjó á Nesi við Seltjörn) með þeirra fólki, höfðu látið undan koma af góssi og bókum, er sízt vildu missa. (Hítardalsannáll.) Samvinnufél. Árið 1925 liófst vegur Körfu- gerðarinnar og liefir hróður þess fyrirtækis stórum aukizt með hverju óri, sem liðið hefir síðan, enda voru og eru stoð- ir þær, sem fyrirtækið var reist ó mjög styrkar — vönduð vinna og afbragðs vel liðnir eigcndur. Það var árið 1922, sem Þór- steinn Bjarnason sigldi utan til Kaupmannahafnar og hóf að læra körfuiðn. Er liann var full- numa haustið 1925, kom hann aftur heim og stofnsetli þá svo að segja strax fyrirtæki sitt, Körfugerðina, eða þ. 15. októ- ber sama ár. Þórsteinn er að öllum líkindum fyrsti íslenzki maðurinn, sem numið hefir þessa iðn. Lærði hann hjá vel þekktu firma í Kaupmanna- höfn, sem heitir „Joseph Bac- ina“. Hafði Þórsteinn fyrstu árin lnisnæði fyrir Körfugerðina ó Hverfisgötu 18 hér í bæ, og vann hann þar einn að iðninni í þrjú ár. En þar sem húsnæðið var lítið, varð brátt nauðsynlegt að auka það og um leið mannafl- aijn, því framleiðslan fullnægði ekki nándar nærri eftirspurn- inni, þó Þórsteinn leggði tölu- vert að sér við vinnu. Árið 1928 flutti fyrirtækið því í mun stærra húsnæði á Skólavörðustig 3 hér í bæ og vinna nú að staðaldri 1—3 mcnn við það, og þannig hélt það áfram lil ársins 1932. Þá gerðist Jóhannes Þorsteinsson meðeigandi Körfugerðarinnar og nefndist það upp frá því „Körfugerðin s.f.“. Þetta sama ár flutti fyrirtækið í Banka- stræti 10, þar sem það hefir síð- an haft aðsetur. Frá því Þórsteinn hóf körfu- gerð hér árið 1925 og þar til Jóhannes gerðist meðeigandi • fyrirtækisins árið 1932, hafði aðallega verið lögð áherzla á körfugerðina sjálfa og Þór- steinn bólstrað sjálfur það, sem með þurfti, en nú var ráðinn lærður bólstrari til þess að inna það verk af höndum. Aðalfram- leiðsluvaran var og er enn þann dag í dag körfustólar, allar gerðir, og körfuborð á fyrstu árum fyrirtækisins. Aijk þessa var framleitt mikið af barna- vöggum, handkörfum, þvotta- körfum og bréfakörfum. En ár- ið 1932, þegar bólstrari var ráð- inn til fyrirtækisins, svo sem fyrr getur, hófst tilbúningur bólstraðra húsgagna fyrir al- vöru. Hefir frá þeim tíma verið búið til mikið af bólstruðum stólum, legubekkjum, og ýmis- legu.fleira. Frá árinu 1932 og til ársins 1937 þegar Jóhannes heitinn Þorsteinsson lézt, unnu að stað- aldri 4—5 menn við fyrirtækið, að eigendum báðum meðtöld- um. Frá því Jóhannes lézt, hefir Þórsteinn staðið einn fyrir Körfugerðinni, og hafa numið þar 6—7 manns, auk hans. Sala á þeim munum, sem Körfugerðin hefir haft á boð- stólum, hefir ávallt verið að aukast frá fyrstu tíð og náði hún hámarki á tveim síðustu árunum. „Körfugerðin s/f.“ er eina fyrirtækið hér á landi, sem býr til körfu-vörur, en árið 1927 fór af stað nýtt fyrirtæki í sömu iðn. Fyrirtæki þetta, sem var eign önnu Jensdóttur, starfaði í tvö ár, eða til ársins 1929, en þá keypti Þórsteinn það og hóf Anna þá vinnu hjá honum og vann hiá honum í tvö ár eftir það. Deild „Körfugerðarinnar“ á iðnsýningunni 1932.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.