Vísir - 17.06.1944, Qupperneq 55
VlSIR
ÞJiÓÐHÁTÍÐARBLAÐ
55
Árið 1923 stofnuðu þeir Ól-
afur Gíslason og Einar Péturs-
son verzlunarmenn með sér
heildsölufirma og nefndu það
Ólafur Gíslason & Co. Marlunið
þeirra var einkum að afla nauð-
synja handa sjávarútveginum
frá útlöndum, en selja aftur til
útlanda íslenzkar sjávarafurðir.
Auk þess var ætlunin að stunda
almenna innflutningsverzlun.
Firmanu tókst snemma að afla
sér ágætra verzlunarsambanda,
bæði fyrir innflutning og út-
flutning. Jókst innflutningur
þess á kolum og salti í heilum
förmum óðfluga, en jafnframt
tók það að flytja inn kaffi í
stórum stíl. Þá tók finnað einn-
ig virkan þátt í útflutningi
fiskjar, hæði blautverkaðs og
þurrverkaðs, svo og annara
sjávarafurða, og um eitt skeið
flutti það talsvert út af rjóma-
bússmjöri.
Heildverzlunin hafði fyrstu
árin skrifstofur í húsi Árna og
Bjarna klæðskera í Bankastræti
11, en þegar Edinborgarhúsið
í Hafnarstræti var reist, flutti
það skrifstofur sínar þangað og
hefir verið þar síðan.
Frá upphafi og fram i ófrið-
arbyrjun hafði firmað mikla
fiskiverzlun við útlönd, og liafði
hún aukizt jafnt og þétt, þar til
er Sölusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda var stofnað 1932,
en þá dró af eðlilegum ástæðum
úr fisksölu þess. Varð það til
þess, að firmað tók að auka
mjög innflutningsverzlun sína,
en innflulningur jiess er aðal-
lega á útgerðar- og neyzluvör-
um, og hefir ])að nú orðið um-
hoð fyrir mörg heims])ckkt
firmu.
Meðal þessara framleiðslu-
firma má nefna félagið W. T.
Avery Ltd. í Birmingham, sem
telja má mesta framleiðanda
heimsins á vogum og öðrum
mælitækjum. Hundruð voga,
stórra og smárra, frá þessu fé-
lagi, eru nú í notkun víða um
landið, til dæmis nota flest eða
öll frystihús landsins Avery-
vogir. Þá má nefna hílavogir í
Reykjavík, á Isafirði, Bolunga-
vík, Patreksfirði, Sandgerði og
viðar. Avery-verksmiðj urnar
framleiða vogir, er vega allt, frá
hinu léttasta til hins þyngsta, og
vinna milli 2 og 3 þúsund
manns í hinum voldugu verk-
smiðjum Avery-féíagsins í Soho
Foundry í Birmingham, en Soho
Foundry hefir verið kölluð
„vagga nýtízku iðnaðar“.
Broolts Motors Limited í
Huddersfield er annað við-
skiptafirma Ólafs Gíslasonar &
Co. li/f, og hefir þaðan verið af-
greilt mikið af ragmagnsmótor-
Ólafur Gí§la§on
& Co. b.f.
um til landsins. Verksmiðja
þessi er kunn að vandaðri fram-
leiðslu, og má gera sér miklar
vonir um vörur þeirra í fram-
tíðinni, þegar aftur verður hægt
að flytja vélar inn frá Bretlandi.
Compagnie Commerciale du
Nord hefir mörg undanfarin ár
selt hingað til lands mikiðaf iðn-
aðarvörum og hráefnum til iðn-
aðar. Þetta félag rekur starf-
semi sina á friðartimum um alla
Evrópu.
Joseph Gundry & Co. Ltd. er
sennilega elzta veiðarfæraverk-
smiðja heimsins, enda orðin 265
ára gömul, og verksmiðjurnar
eru nú reknar viða um Eng-
land, bæði í Bridport, þar sem
félagið hefir heimili, og annars-
staðar. Allir íslenzkir sjómenn
kannast við snyrpinætur Gun-
drys og síldarnet, enda þykir
vörumerkið full trygging fyrir
fengsælum veiðarfærum og
vönduðum.
Hardy Brothers Ltd. er ann-
að veiðarfærafirma, sem Ólafur
Gíslason & Co. h/f hafa umboð
fyrir, þótt það sé að vísu ólíks
eðlis, enda við allt öðruvísi
veiðarfæri riðið. Hardy-hræður
kalla sig „the world’s angling
specialists“, og „veiðarfæri“
þeirra eru laxveiðistengur, lín-
ur, hjól, önglar og alll sem að
lax- og silungsveiðum lýtur. —
Það er óhætt að segja, að sá
sportveiðimaður er ekki til, sem
ekki þekkir Hardy-vörur og
minnist þeirra með virðingu.
Hardy-firmað er mjög gamalt
og hefir aðsetur sitt í einni
virðulegustu götu Lundúna, Pall
Mall, rétt andspænis höll
Bretakonungs, St.James’ Palace.
United Glass Bottle Manu-
facturers Ltd. í London er sam-
steypa fjölda margra glerverk-
smiðja víðsvegar í Bretlandi.
Þær framleiða allar tegundir af
glerumbúðiun, svo sem gos-
drykkja og ölflöskur, lyfjaglös,
niðursuðuglös og fleira. UGB-
vörurnar eru heimsþekktar og
hafa verið seldar til Islands um
langt skeið.
Þá eru fluttar inn allskonar
iþrótta- og sportvorur frá hinu
þekkta heimsfirma Spalding í
Englandi. En síðan fór að
þrengjast um innflutning frá
Bretlandi, hefir tekizt að flytja
þessar vörur frá verksmiðju
Spaldings í Bandaríkjunum.
Einhver mesta kaðlaverk-
smiðja Bretlands er Wright’s
Ropes Ltd. i Birmingham. Þessi
verksmiðja framleiðir allar teg-
undir kaðla og víra til skipa,
verksmiðja og uppskipunar-
tækja, allt frá þykkum stálvír-
um og sverum köðlum niður í
flestar tegundir netagarns.
„Skipper“ dragnótatóin frá
þessari verksmiðju eru vel
þekkt hér á landi.
Margar verzlunar- og iðn-
byggingar hér á landi nota hina
þekktu Pyrene-slökkvitæki, en
með þeim teljast bæði hand-
slökkvitæki af öllum gerðum,
vatnsdælur, slöngur og fleira.
Af þessum tækjum má sérstak-
lega nefna lítil, handhæg tæki
fyrir bíla og smáháta. öll vá-
tryggingarfélög, sem hér starfa,
gefa afslátt af vátryggingarið-
gjöldum fyrir þau hús, er hafa
Pyrene-slökkvitæki fyrir hendi.
Það eru ekki nema 3—4 ár
síðan fyrsta Streamline Filter
olíuhreinsunarvélin var keypt
hingað til landsins. Hana keypti
Verzlun Ó. Jóhannesson h/f á
Patreksfirði. En nú skipta þau
frystihús og önnur iðnaðarfyrir-
tæki tugum hér á landi, sem
fengið hafa ágæta reynslu af
þesari ágætu vél, sem skilar
smurningsolíunni eins og nýrri
eftir skjóta hreinsun. Einnig
hafa mörg skip fengið slíkar
vélar og sérstakar gerðir eru
framleiddar fyrir almennings-
vagna og stærri rafstöðvar.
General Refractories nefnast
stærstu verksmiðjur Bretlands,
sem framleiða eldfastan leir og
stein, ásamt steypusandi fyrir
málmiðnaðarmót. Þessar verk-
smiðjur hafa selt hingað mikið
af vörum sínum.
Þá hefir firmað einnig sam-
band við Georg Angus & Co.
Ltd., sein framleiðir ágætar
vélareimar, pakkningar, gúmmí-
slöngur, asbestföt, gúmmídúk
og fleiri vörur ómissándi fyrir
iðnað og framleiðslu.
Innflutningur Ólafs Gislason-
ar & Co. h/f á striga er fyrir
löngu orðinn þjóðkunnur, en í
þeirri grein hefir firmað flutt
inn allskonar poka fyrir salt,
kol og aðrar vörur, og einnig
liessian, sem notaður er til hús-
bygginga og til að klæða með
lestar í fiskflutningaskipum og
til að pakka saltfiski. Hefir
firmað í þeirri grein samband
við helztu verksmiðjur Brela.
Loks er að geta um kola- og
saltinnflutning firmans', en það
eru þær vörur, sem inn hafa
verið fluttar í hvað stærstum
stíl, enda liefír firmað haft á
hendi verulegan hluta af heild-
arinnflutningi þessara vara til
landsins um mörg undanfarin
ár. Bein sambönd hefir firmað
við tvö elztu og merkustu kola-
útflutnigsfirmvj og námueig-
endafirmu Bretlands, Michael
Whitaker Ltd. og Arthur Whar-
ton Ltd., bæði í Hull. Allir, sem
kol kaupa að nokkru ráði, kann-
ast við þessi gömlu og góðu
kolafirmu, og kolaverzlanir og
verksmiðjur, er kol kaupa í
stórum stíl, hafa oft gert hjá
þeim góð kaup.
Salt hefir verið flutt inn í
heilum förmum frá Spáni og
Italíu, og hefh’ Ólafur Gíslason
& Co. h/f sambönd við hin
heztu sölufirmu i Miðjarðar-
hafssalti. Firmað varð fyrst til
að flytja liingað til lands Cagli-
ari-salt, sem hlotið hefir ein-
rórna lof útgerðarmanna og
fiskverkenda.
Eins og drepið hefir verið á
hér að framan, hefir innflutn-
ingur í mörgum vörugreinum
teppzt frá Bretlandi, þar sem
firmað hafði sín aðalsambönd.
En i stað þess, sem þaðan hefir
ekki fengizt, liefir firmað aflað
sér sambanda i Ameríku, og
stai’far fulltrúi frá firmanu i
New York á vegum þess. Hann
hefir í mörg undanfarin úr unn-
ið í skrifstofu firmans í Reykja-
vík og hefir því aðstöðu til að
velja vörur fyrir íslenzkan
markað og með íslenzkan
smekk og þarfir fyrir augum.
Ólafur Gíslason & Co. h/f
urðu fyrstir til að flytja hingað
kaffi beint frá Brasilíu, og hafa
sum árin verið mestu kaffi-inn-
flytjendur landsins.
Firmað var gert að lilutafé-
lagi í desember 1936, og gerðist
þá Tómas Pétursson skrifstofu-
stjóri firmans hluthafi. Hann er
ungur maður, fæddur 1910. En
eldri eigendurnir og stofnend-
lirnir eru heldur ekki neinir
öldungar. Einar Pétursson er
liðlega fimmtugur og Ólafur
Gíslason hálfsextugur. Það er
því öll ástæða til að ætla, að þeir
stjórni félaginú enn um langa
hríð af sama dugnaði og mynd-
arskap og hingað til.