Vísir - 17.06.1944, Qupperneq 93

Vísir - 17.06.1944, Qupperneq 93
VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 93 Enda þótt það megi teljast sennilegt,. að ljóðskáld nútím- ans séu að jafnaði tæplega eins mikilhæf og ljóðskáld 19. ald- arinnar, hafa þó komið fram mörg ágæt ljóðskáld á vorum tímum. Af hinni eldri skálda- kynslóð, er kom fram. á fyrsta og öðrum tug 20. aldarinnar, má nefna Jakob Thorarensen, Jakob Smára, Unni Bjarklind, er skrif- ar undir gervinafnínu Hulda. Um og eftir 1920 fer að bera á Davíð Stefánssyni og Tómasi Guðmundssyni. Nokkru eldri en þeir er Stefán frá Hvítadal. Nokkurn veginn jafnaldri þeirra er Jón Helgason prófessór í Kaupmannahöfn. Nokkru yngri er Jóhannes úr Kötlum, Guð- "mundur Böðvarsson og Guð- mundur Ingi Guðmundsson. Af þessum skáldum mun Tómas Guðmundsson að ýmsu leyti standa fremstur. Yfirleitt munu bæði ljóðskáld og söguskáld nú á dögum standa hinum eldri skáldum framar um stílfágun, en hvort þeir eru meiri andans menn er annað mál. Leikritagerð hefir ekki verið minnzt á hér sérstaklega. Það hefir aðeins Verið minnzt á Jó- hann Sigurjónsson sem leikrita- skáld. Á síðari liluta 19. aldar hófst hin eiginlega leikritagerð með Skuggasveini Matthíasar og Nýársnóttinni eftir Indriða Einarsson. Indriði lagði fyrir sig leilcritagerð, en leikrit hans eru tilkomulítil. Jóhann Sigurjóns- son er eina mikla leikritaskáld- ið, sem ísland hefir átt ennþá sem komið er. Annars hefir Guðmundur Kamban samið ýms góð leikrit, t. d. Höddu Pöddu, og nú á síðustu tímum hefir Davíð Stefánsson o. fl. samið leikrit, en ennþá hefir ekki ból- að á neinu leikritaskáldi, sem er neitt nálægt því,að taka upp merki Jóhanns Sigurjónssonar. Enn licfir ekki verið getið um nein af skáldum Vestur-Islend- inga, en eigi má þó undir höfuð leggjast að minnast Stephans G. Stephanssonar, sem flutti í æsku vestur um haf og gerðist bóndi vestur í Klettafjöllum. Stephan var kraftmikið skáld og minnir helzt á menn eins og Grím Thomsen eða Bólu-Hjálmar. Hann er af ýmsum talinn hafa verið mesta skáld í nýlendum Breta á sínum tíma. tya}\oh Gríslascn• RAFORKUMAL Á ÍSLANDI. Á þeirri mikilvægu og sögu- legu stundu, þegar lýðveldi er stofnað á Islandi í annað siim og síðustu stjórnmálalegar leyfar erlends valds eru afmáðar, er vel til fallið að staldra snöggv- ast við og athuga hvar við stöndum, líta til haka og reyna að gera oss grein fyrir því, hvort áfram hefir miðað og hve mikið í áttina að einhverju því marki, sem vert er að stefna að. Þrátt fyrir aðdáun voi'a á for- feðrum vorum, sem byggðu landið og stofnuðu hér lýðveldi fyrir þúsund árum, væri oss ljúft að geta með sanni sagt, að vér stæðum þeim feti framar í einhverju. Nú hygg eg að mjög komi til álita, hvort kynslóð sú, er nú lifir, stendur forfeðrun- um framar að líkamlegu og and- legu atgervi, enda má ef til vill um það segja, að um það sé oss eigi sjálfrátt og verði oss því eigi lagt til lofs eða lasts, hvern- ig sem samanburður í þeim efn- um félli. Á siðferðilegt þrek og þroslca verður erfitt að finna nokkurn þann mælikvarða, sem ekki yrði allmjög umdeildur. Eg hygg að oss muni á þessari stundu verða það á „að beiria at- hygli vorri einkum að hinni verklegu hlið þjóðlífs vors og menningar, með því að vér þar teljum öruggast að finna eitt- hvað, sem vér megum stæra oss af. Og það því fremur, sem nú- lifandi kynslóð telur sig eiga al- veg sérstaklega hlutdeild í þeim stórfelldu breytingum, sem oi'ð- ið hafa í þeim efnum. Það er nú tilgangur þessarar greinar, að rekja lauslega sögu eins hinna yngri þátta í athafna- lífi þjóðar vorrar, vinnslu og notkun raforku. Aðeins fjörutíu ár eru bðin siðan notkun raf- magns hófst hér á landi og þó er það orðið svo þýðingarmik- ill þáttur í lífi voru og störfum, að vér megum ekki eina stund án þess vera, svo sem vér sárt höfum fundið hin síðustu árin, er nagdýr og næðingar hafa hvað eftir annað svift oss því um stundar sakir og vér höfum setið verklausir í myrkri og kulda. Og þó erum vér eim mjög skannnt á veg komnir um að færa oss í nyt þau miklu skil- yrði, sem þessi nýja tækni skap- ar oss til þess að nýta landið og auðæfi þess og til að hfa góðu lífi í landinu. Hagnýt þekking á rafmagni er ekki gömul í heiminum. Það er Daninn H. C. örsted, sem rétt fyrst eftir aldamótin 1800 verður var við samhengi milli segulmagns og rafstraums, en Faraday uppgötvar nokliru síð- ar (1831) að með segulmagni er hægt að framkalla raf- strauma. Þessar tvær uppgötv- anir muri mega telja upphafið að hinni stórfelldu hagnýtingu raforkunnar, sem þegar er orð- in, en verða mun þó enn meiri. Sogsstöðin. Nálægt aldarfjórðungi eftir að Faraday gerir uppgötvun sína, er f'arið að gera og nota raf- magnsvélar, rafala og hreyfla. Kringum 1890 hefst flutning- ur á raforku með háspennulín- um og skapast við það skilyrði til hagnýtingar vatnsorku í svo stórum stíl, sem síðar hefir orðið. Vér Islendingar urðum í fyrstu, að vonum, nokkru á eft- ir stórþjóðunum og nágrönnum okkar um notkun þessarar nýju tækni. Thomas Edison fann glóþráðarlampann árið 1879 og stofnaði f jórum árum síðar New York Edisön félagið, til að fram- leiða og dreifa raforku til lýs- ingar, en þetta mun mega telja hina fyrstu rafveitu til almenn- ingsþarfa. Um 1893 taka til starfa fyrstu rafveiturnar í Noregi. Á þessu timabili eru og rafveitur stofnaðar í ýmsum löndum Evrópu. Fyrsta rafveitan á Islandi er sú, er Jóharines Reykdal stofn- aði til í Hafnarfirði, þar sem hann sjálfur byggði vatnsafls- rafstöð, tæpl. 10 kílówatta, og seldi frá henni raforku til ljósa til 16 húsa. Það var árið 1904, og hefir Jóhannes skýrt mér svo frá, að stöðin hafi tekið til starfa 1. desember það ár. Þá um sumarið kom heim frá raf- fræðinámi fyrsti íslenzki raf- fræðingurinn, Halldór Guð- mundsson, og annaðist hann lagningu á rafleiðslum frá raf- stöð Jóhannesar og í hús þeirra, sem rafmagn tóku. Þessi raf- stöð er enn í notkun og vinnur nú raforku handa nokkrum hluta af fyrirtækjum Jóhann- esar, en langt er síðan hún var orðin of htil fyrir Hafnarfjarð- arkaupstað, enda kaupir raf- veita kaupstaðarins nú hátt á annað þúsund ldlówött frá Sogsvirkjuninni. Fyrsta raf- magnsvélin í rafstöð Jóhannesar Reykdal hefir fyrir löngu verið tekin úr notkun, en Jóliannes geymir hana enn í þeim tilgangi, að hún megi varðveitast og komast á iðnminjasafn éða ann- að safn fyrir slíka muni, sem hér hlýtur að verða komið á fót. Nokkrum árum síðar munu einstakir húsaeigendur í Reykja- vík hafa sett upp smá olíuhreyf- ilstöðvar til raflýsinga í eigin húsum, en síðar komu upp stöðvar, er seldu rafmagn um heil bæjahverfi, og munu raf- 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.