Vísir - 17.06.1944, Blaðsíða 102
VÍSIR — ÞJÓÐHÁTlÐARBLAÐ
102
og Fiskarnir (íslenzk dýr I—
III), en auk þess samdi hann
kennslubækur í fræðigrein
sinni og skrifaði sæg af ritgerð-
um. í ýms blöð og tímarit. Á út-
lendum málum skrifaði hann
einnig margt og mikið um ís-
lenzka dýrafræði, hæði ritgerð-
ir'og sjálfstæð rit. Bjárni Sæ-
mundsson var kjörinn formað-
ur Náttúrufræðifélagsins og
umsjónarmaður Náttúrugripa-
safnsins árið 1905 og gegndi
þeim störfum til dauðadags
1940. Hann fórnaði félaginu og
safninu miklu af starfsorku
sinni og enginn einstakur mað-
ur hefir átt meiri þátt i eflingu
safnsins en hann.
Aðrir íslendingar, sem lokið
hafa háskólanámi í dýrafræði,
eru Pálmi Hannesson, Árni
Friðrikssón, Finnur Guðmunds-
son og Hermann Einarsson, en
auk þess hafa Guðm. G. Bárð-
arson, Magnús 1 Björnsson og
Geir Gígja unnið allmikið að
dýrafræðirannsóknum.
Aðalstarf Guðm. G. Bárðar-
sonar i þágu islenzkrar náttúru-
fræði voru jarðfræðirannsóknir
hans, en hann fékkst einnig við
dýrafræðirannsóknir og hefir
ritað yfirlit vfir íslenzk sælin-
dýr i skýrslu Náttúrufræðifé-
lagsins. Er þar dregið saman i
eina heild allt sem þá (1918)
var vitað um íslenzk sælindýi’
og útbreiðslu þeirra við ísland.
Auk þess samdi Guðm. sjálf-
stætt rit um sælindýr við vest-
urströnd íslands.
Magnús Björnsson var um
Iangt skeið starfsmaður við
Náttúrugripasafnið. Hann hefir
einkum lagt stund á fuglarann-
sóknir og samið alþýðlegt rit
um íslenzka fugla, sem Ferða-
félag íslands gaf út. Þegar haf-
ist var handa um fuglamerk-
ingar á vegum Náttúrufræði-
félagsins árið 1932 var Magn-
úsi falin umsjón þeirrar starf-
semi. Kom hann skipulagi á
hana og stjórnaði henni með
miklum dugnaði fyrstu tíu árin.
Pálmi Hannesson hefir lítið
sinnt dýrafræðirannsóknum,
enda hefir liugur hans einkum
hneigzt að landfræðilegum og
jarðfræðilegum viðfangsefn-
um, auk þess sem hann gegnir
umsvifamiklu embætti sem
rektor' Menntaskólans í Reykja-
vik.
Árni Friðriksson var ráðinn
starfsmaður Fiskifélagsins árið
1931, og skyldi hann hafa með
höndum fiski- og sjórannsóknir
á, vegum félagsins. Þegar At-
vinnudeild Háskólans tók til
starfa árið 1937 var Árni skip-
aður forstjóri Fiskideildarinnar
og fliittust þá fiskirannsóknirn'
ar þangað. Undir forustu Árna
Friðrikssonar liafa þær eflst
mjög og á því sviði er nú orðið
um margþætta starfsemi að
ræða í þágu íslenzkra fiskveiða
og útgerðar. Bein afleiðing af
hinum auknu fiski- og sjórann-
sóknum íslendinga var skref
það, er þeir lóku árið 1938, en
þá gerðist ísland sjálfstæður
meðlimur í Alþjóða-liafrann-
sóknarráðinu við hlið annarra
ríkja í Norður- og Vestur-
Evrópu, en áður hafði Danmörk
farið með umboð Islands í ráð-
inu. Árni Friðriksson hefir
skrifað mikið um rSlenzka dýra-
fræði, bæði visindalegar ritgerð-
ir á íslenzku eða erlendum mál-
um og alþýðlegar ritgerðir og
rit á íslenzku.
Finnur Guðmundsson og
Hermann Einarsson eru báðir
ráðnir starfsmenn við Fiski-
deild Atvinnudeildarinnar, en
Hermann dvelur af styrjaldar-
ástæðum enn í Kaupmanna-
höfn. Loks má geta þess að Geir
Gigja kennari hefir fengizt
mikið við rannsóknir á islenzk-
um skordýrum 'og orðið mikið
ágengt á því sviði.
Hér að framan hefir verið
getið þeirra Islendinga, sem
unnið hafa að rannsóknum á
dýraríki íslands á tímabilinu
1&74—1944. Eins og áður hefir
verið skýrt frá, var Hið islenzka
náttúrufræðifélag stofnað
snemma á þessu tímabili, en
bæði það og svo náttúrugripa-
safnið, sem smám saman hefir
vaxið og eflst á vegum þess,
hafa haft mikla þýðingu fyrir
þróun islenzkrar dýrafræði.
Mikið framfaraspor var éinnig
stigið með stofnun Atvinnu-
deildar Háskólans, en þar hafa
skapast skilyi’ði fyrir þá dýra-
fræðinga, er þar vinna. Þá ber
og að minnast á timaritið Nátt-
úrufræðinginn, sem stofnað var
af þeim Guðm. G. Bárðarsyni
og Árna Friðrikssyni árið 1931.
Timaritið er nú eign Náttúru-
fræðifélagsins og gefið út af því.
Þar hefir þegar birzt fjöldinn
allur af ritgerðum, bæði vísinda-
Iegum og alþýðlegum um ís-
lenzka dýrafræði, en áður hafði
einnig allmikið af þvi tagi verið
hirt í skýrslu Náttúrufræðifé-
lagsins. Á vegum Vísindafélags
Islendinga, sem stofnað var
1918, hafa einnig komið út
nokkur rit urn dýrafræði, en
niðurstöðurnar af dýrafræði-
rannsóknum þeim, sem gerðar
eru i Atvinnudeild Háskólans,
eru birtar í „Rit Fiskideildar".
Þá hefir Náttúrufræðideild
Menningarsjóðs unnið þarft og
þýðingarmikið verk með þvi að
styrkja islenzka dýrafræðinga
til rannsókna og visindastarf-
semi. Með stofnun Rannsókna-
ráðs ríkisins hefir loks verið
gerð tilraun til þess að skipu-
leggja og samræma dýrafræði-
rannsóknir og aðrar náttúru-
fræðirannsóknir íslendinga bet-
ur en áður hefir verið.
Þáttur sá, sem útlendingar
liafa átt í rannsóknum á dýra-
riki íslands á tímabili því, sem
hér er um að ræða, hefir verið
mikill og margvíslegur. Bía-
fyrst að nefna sjórannsóknir
Dana hér við land. Á árunum
1895—1896 gerðu þeir út rann-
sóknarleiðangur á „Ingolf“ til
íslands og Grænlands, og varð
mikill dýrafræðilegur árangur
af þeirri för. Á árunurn 1898—
1908 voru ýmsir danskir nátt-
úrufræðingar á varð- og mæl-
ingaskipum hér við land, og
unnu þeir meðal annars að sjó-
dýrarannsóknum. Eftir að al-
þjóða-hafrannsóknaráðið var
stofnað árið 1902, hófust fyrir
alvöru hinar stórmerku fiski-
og sjórannsóknir Dana liér við
land undir forustu Johs.
Schmidt, fyi-st á „Thor“ á árun-
um 1903—1905 og 1908—1909
og eftir 1922 á „Dana“. Eftir lát
Johs. Schmidt 1933 hefir Á.
Vedel Táning veitt rannsóknum
þessurn forstöðu, en nú munu
að sjálfsögðu íslendingar taka
þær að miklu eða öllu leyti í sín-
ar hendur. Árið 1925 voru auk
þess Skotar að rannsóknum hér
við land á „Explorer“ og 1902,
1903 og 1922 höfðu Norðmenn
hér stutta viðdvöl á „Micliael
Sars“. Loks hafa Þjóðverjar
verið hér við rannsóknir á
„Meteor“ nokkrum sinnum á
árunum 1929—1935.
Þá hafa og útlendingar einnig
átt þátt í vatnarannsóknum hér
á Iandi. Fyrir atbeina Tryggva
Gunnarssonar var fenginn hing-
að merkur danskur vatnalíf-
fræðingur (A. Feddersen) árið
1884 til þess að athuga gróður,
dýralif og fiskveiðar i ám og
vötnum, og árið 1924 var feng-
inn hingað austurriskur vatna-
líffræðingur (Reinsch) i sömu
erindagerðum. Með aðstoð B.
Sæm. létu auk þess danskir vís-
indamenn (Ostenfeld og Wesen-
berg-Lund) gera rannsóknir á
svifinu í Þingvallavatni og Mý-
vatni upp úr aldamótunum síð-
ustu, og norskur vísindamaður
(Knut Dahl) hefir rannsakað is-
lenzka vatnafiska, sömuleiðis
með aðstoð B. Sæin.
Mikil afskipti hafa og útlend-
ir dýrafræðingar liaft af söfnun
dýra á landi og rannsóknum þar
að Iútandi, en það, sem um þær
rannsóknir hefir verið birt, er
flest á víð og dreif i erlendum
visindatímariturrt. Éihná mest
liafa þeir ritáð uni islenzka
fuglh. iÞjöðverjarnir B. Hantz-
sðh ög G. Timmermann, Eng-
lendingurinn H. Slater og Jap-
aninn M. >U. Hachisuka liafa all-
ir samið sjálfstæð rit um ís-
lenzka fugla, en auk þess hefir
sægur af ritgerðum um sama
efni birzt i erlendum fugla-
fræðitímaritum. Sænskur skor-
dýrafræðingur, C. H. Lindroth,
safnaði hér skordýrum sumurin
1926 og 1929 og hefir samið mik-
ið og merkilegt rit um íslenzk
skordýr, sem er höfuðrit um
þann flokk islenzkra dýra. Loks
má geta þess, að enskir náttúru-
fræðistúdentar fi'á Cambridge
og Oxford liafa á siðari árum
farið i nokkra leiðangra til Is-
lands, og meðal annars fengist
við dýrafræðirannsóknir og rit-
að ýmislegt um þær. Margt
fleira mætti segja um dýra-
fræðirannsóknir erlendra
manna hér á landi á þessu tíma-
bili, en hér verður þó látið stað-
ar numið.
III.
Eitt mesta átakið, sem gert
hefir verið til að auka þekkingu
vora á dýrariki Islands, er út-
gáfa hins mikla ritverks „Tlie
Zoology of Iceland“, Yerk þetta
er gefið út af íslenzkum og
dönskum dýrafræðingum í sam-
einingu, og er þar dregið saman
í eina lieild allt, sem vitað er í
dag um dýraríki Islands. Verkið
er gefið út í lieftum og byrjaði
það að koma út 1937. Til þessa
hafa komið út 37 hefti, en
vegna styrjaldarinnar hefir i
bili nokkuð dregið úr allri starf-
semi í sambandi við útgáfuna.
Allt verkið á að verða finnn
bindi. I 1. bindinu verður saga
íslenzkra dýrafræðirannsókna,
almenn landlýsing og lýsing á
loftslagi, almenn sjófræði
(Hydrografia) og auk þess yfir-
lit yfir ýmis dýrasamfélög
(dýrasvið sjávarins, botndýra-
líf sjávarins, dýrasamfélög
í fjörum, jarðvegi, vötnum, ám,
lækjum óg köldum og lieitum
uppsprettum). I 2.—4. bindi
verður skrá yfir allar dýrateg-
undir, sem fundizt bafa á ís-
landi til þessa. Verður þar getið
um útbreiðslu hverrar tegundar
hér á landi og auk þess út-
breiðslu tegundarinnar i heim-
inum. I 5. bindinu verður svo
loks almenn dýralandafræði, og *
verða þar rakin einkenni og
uppruni hins islenzka dýraríkis
og skyldleiki þess við dýraríki
nágrannalandanna.
Við samningu verksins verður
stuðst við allt, sem hingað til
hefir verið ritað um dýraríki Is-,