Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 27
með matar- og vínsérfræðingi Morgunblaðsins
Nú geta áskrifendur Morgunblaðsins kynnst einstakri
sælkerastemmningu Parísarborgar undir fróðlegri
fararstjórn Steingríms Sigurgeirssonar, matar- og
vínsérfræðings Morgunblaðsins.
Flogið er til Parísar með Flugleiðum föstudaginn 9. apríl
og komið aftur mánudaginn 12. apríl
Bollinger og Veuve Clicquot, verða heimsóttir í
kjallarana og framleiðslunni gerð góð skil.
Ferð á elsta og glæsilegasta veitingastað Parísar,
La Tour d'Argent á sunnudeginum. Takmarkaður fjöldi
kemst að en þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem
vilja njóta þess allra besta.
*Verðið er aðeins 39.740 kr. á mann í tvíbýli, innifalið
er flug með Flugleiðum, flugvallarskattar, gisting á
Home Plazza Bastille í 3 nætur, morgunverður, akstur
til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og kvöldverður
á frönskum veitingastað á föstudagskvöldinu.
Steingrímur Sigurgeirsson þekkir vel matar- og vín-
menningu Frakka, hann gefur ferðalöngum góð ráð
um hvernig njóta megi lystisemda Parísar.
Á föstudagskvöldinu verður sameiginlegur kvöldverður
á Brasserie La Coupole þar sem saman fer glaðværð og
gómsætur matur. Kvöldverðurinn er innifalinn í verðinu.
Ef næg þátttaka fæst verður boðið upp á
neðangreindar ferðir á sanngjörnu verði
Dagsferð á laugardeginum til kampavínshéraða í
nágrenni Parísar þar sem tveir stórir framleiðendur,
Ferð á Louvre-safnið á laugardeginum og skoðunarferð
í Versali á sunnudeginum.
FLUGLEIÐIR
Bókanir fara fram á söluskrifstofu Flugleiða í
Kringlunni í dag frá kl. 10 -16 hjá Arnari í síma
5050 796, Þorbjörgu í síma 5050 785 og Særósu
í síma 5050 791.
Steingrímur svarar fyrirspurnum á skrifstofu Flugleiða
í Kringlunni í dag kl. 14 - 16.
Franskir dagar á söluskrifstofum Flugleiða hefjast í
Kringlunni í dag og standa til 19. mars.
takmarkadur
cgTATJOLDl
6 0 T T F ó L K • SlA • 4568 • MICK ROCK/ CEPHAS