Skírnir - 01.01.1847, Blaðsíða 128
130
um lotningu, t. a. m. á hátíS Christs líkama, þá eru
prótestantar annaíihvort látnir sitja heima, e&a þeir
fara til kirkju sinnar. J)a6 er því meira í þab varib,
aö konungurinn á Bæjarlandi leitast vib, af) jafna í
nokkru rjettindunum á milli prótestanta og katólskra,
sem sagt er, aí) hann sjálfur sje ramm-katólskur, og
allir katólskir sjá hins vegar ofsjónum yfir, ef í ein-
hverju er greidd gata prótestanta, og reyna til meb
öllum hætti ab reisa skorbur vib, aö þab sje gert,
cnda hefur þeim og tekizt þab um langan tíma, en
margir eru nú og hins vegar, sem farnir eru ab
reyna til ab rjetta hlut prótestanta í mörgu.
Um langan tíma hafa gybingar eigi átt upp á
pallborbib í Bæjaralandi, því í öllu hafa þeir hlotib
ab lúta í lægra haldi fyrir hinum öbrum landsbúum.
Gybingar hafa hvab eptir annab borib sig upp um
mebferb þessa, og beibst, ab þeir skyldu sæta sömu
kjörum, sem hinir abrir þegnar Bæjaralandskonungs,
en þessu hefur verib lítill gaumur gefinn allt til þessa
tíma, en þeir hafa hugsab sem svo, ab eigi fjelli trje
vib fyrsta högg, og fyrir þá sök sendu þeir fulltrúa-
þinginu bænarskrá um þetta efni, eins og áburhafa
þeir gert, enda mæltu og flestir fulltrúar fram meb
henni, og kvábu á, ab gjörskoba skyldi tilskipunina
frá 10. júní 1813, er greinir frá öllum skyldum og
rjettindum gybinga á Bæjaralandi, og þegar skyldi
ónýta ýmsar greinir í henni, ereinnamest takmarka
frelsi gybinga, og sjer í lagi þá greinina, er hljóbar
þannig: „Eptir rjettum hætti eiga gybingar ekki ab
fjölga á neinum stab í landinu, heldur skal sjá svo
um, ab þeir fremur fækki, ab svo miklu leyti kostur
er á.” Enn fremur urbu fulltrúar á citt sáttir um,