Skírnir - 01.01.1858, Síða 10
12
FRÉTTIR.
Danmörk.
þeim, er fluttar eru yfir lönd Dana konúngs milli Englandshafs og
Eystrasalts. Frumvarp þetta var svo undir komib, aí) þá er veriö
var ab semja um sundtollinn, kom England fram meö þá uppástúngu,
ab engan toll skyldi gjalda af sumum vörum, er fluttar væri yíir
lönd Dana konúngs, en tollrinn á öllum hinum skyldi lækkaÖr um
Qóra fimmtu, og skyldi jafnhár af hverri vöru sem væri, og lagÖr á
varnínginn eptir þúnga hans einum. Danir urbu afe ganga ab þessum
kostum, og er því nú leitt í lög, ab af hverjum 500 punda skuli
gjalda 16 skild. danska í flutníngstoll. þá var og lagt fram frum-
varp um þafe, hvernig verja skyldi fé því, er fengist fyrir sund-
tollinn; fór stjórnin fram á þaÖ í frumvarpinu, a& gjaldkeri ríkisins
fengi leyfi hjá alríkisþinginu til afe hafa fé þetta til ab borga ríkis-
skuldirnar, ef engin væri þörf önnur meiri; en 1,200,000 rd. skyldi
ganga til ríkisgjalda árin 1857 og 1858. Nefnd var sett í þetta
mál, þaÖ var 5 manna nefhd, voru þrír þeirra danskir, einn frá
Slésvík og hinn fimmti frá Holsetalandi. Nefndin breytti mjög
miklu í frumvarpi stjórnarinnar, enda varb og tilrætt um á þínginu,
hvort nefndin hefbi eigi búib til nýtt frumvarp og sérstakt; en
nefndir megu ab eins gjöra breytíngaratkvæbi, eptir þíngsköpum
alríkisþíngsins. þessu lyktabi þó svo, ab breytíngar nefndarinnar
voru álitnar lögfullar, meb því ab allar breytíngar þær væri breyt-
íngaratkvæbi, er væri samkynja efnis og frumvarpib sjálft. Fé þab,
er Danir höfbu fengib í notum sundtollsins, eru rúmar 30 miljóna
dala; en eigi var í vor eb var búib ab semja vib allar jijóbir; Banda-
ríkin í Vestrheimi voru mebal annara eptir, en síban hafa þau samib
um ab borga Dönum 717,829 rd. Sundtollssamníngrinn var gjörbr
14. marz og var látinn gilda upp frá 1. apríl 1857. Nefndin stakk nú
upp á, ab andvirbi sundtollsins yrbi lagt sér í sjób, og hann kallabr
Eyrarsundssjóbr, en gjaldkeri ríkisins skyldi stjórna honum. Nú er
sagt í nefndarálitinu, ab verja megi fé sjóbsins til ab kaupa fyrir
ríkisskuldabréf, einkum innlend, en þó einnig erlend, ef skuldastabr
þætti viss og leigur væri 4 af hdr.; þá var og stúngib upp á, ab
skipta mætti peníngum sjóbsins fyrir eignir ríkissjóbsins og viblaga-
sjóbsins, og þá síban verja peníngunum til ab bórga meb ríkisskuldir;
þá er enn sagt, ab taka megi 3 miljónir af peníngum sjóbsins, til ab
borga meb smáskuldir ríkisins, og enn fremr til ab borga meb ríkis-