Skírnir - 01.01.1907, Page 5
Kveldræður.
5
sannfært mig um, að það er meiri von til að vér gætum
mokað burt Esjunni þarna, heldur en gert oss nokkra
sennilega hugmynd um upphaf heimsins; og skrítið er að
liugsa til þess, að einmitt þetta alveg óviðráðanlega efni
skuli það vera, sem bóknám barna byrjar á hér hjá oss.
Eg veit það líka, að endalykt heimsins — ef nokkur
verður — er jafn fjarri skilningi niínum.
En þrátt fyrir það reyni eg þó til að renna hugan-
um i djúp tímanna, og fátt hvetur fremur til þess
en alstirndur himinn. Eg hugsa um það hvernig þessi
sömu bláköldu ljós blikuðu niður yfir jörðina áður en
nokkurt auga var til að sjá þau, og nokkur meðvitund,
sem þau vektu hugmyndir í. Og hversu margt hafa þau
ekki horft á. Þau hafa séð snjófölu fjöllin hér í kring
verða til, og þau munu sjá þau hverfa; undir þessum
sömu stjörnum hefir lífið hafizt og þróast, og það sem
undraverðast er, meðvitund mannsins; oss finst sem heim-
urinn hafi verið sálarlaus áður en hún var til. En þó er
það einmitt saga lífsins á jörðunni, og þá fyrst og fremst
mannkynssagan, sem þverbannar mér að taka undir lof-
gjörðina um hina margnefndu »dásamlcgu niðurröðun«.
Það eru nú sjálfsagt orðnar 2 miljónir ára síðan fyrst fór
að skapast maður úr dýri, og hver er aðalárangurinn?
Sá að þjáningarnar á jörðunni hafa verið óviðjafnanlega
miklu meiri síðan, en um allar aldir frá upphafi lífsins
áður. Hvílik meðferð á þessari úrvalsskepnu, sem meira
getur fundið til en allar aðrar; þessum dýrgrip, sem fyrst
hefir gefið heiminum nokkra verulega meðvitund um
sjálfan sig. Hirðuleysi og grimd náttúrunnar — hér verð-
ur auðvitað að beita líkingarfullum orðum — er hvergi
skelfilegri en gagnvart mönnunum. Að mannslíf skuli
geta faríst fyrir slys, að hinn þarfasti vitringur skuli geta
marist sundur undir heimsku vagnhjóli, að ungbarn, sem
er von og gleði foreldra sinna skuli geta verið dauða-
dæmt fyrir algengt og lítils háttar hirðuleysi og þar fram
eftir götunum, alt þetta ber vott um kæruleysi og gritnd.
Er það ekki háðung við kórónu sköpunarverksins, að