Skírnir - 01.01.1907, Page 27
Darwmskenning og framþróunarkenning.
27
framþróunar-kenninguna, þá fengjum vér skoðun á fram-
þróun lífsins í heild sinni, sem hvorki væri skoðun Dar-
wins né Lamarcks, með því að vér sleptum staðhæflng-
unni um samfeldar breytingar, sem þeim er sameiginleg,
og af því að vér eignuðum uppruna tegundanna hvorki
náttúruvalinu né ættgengi þeirra breytinga sem einstak-
lingurinn tekur á æfiskeiði sínu, hvaða þátt sem þessi tvö
atriði annars kunna að eiga í ýmsum minni háttar breyt-
ingum lifandi vera. Auðvitað væri það — eg endurtek
það — ekki annað en tilgáta, en hún verður ekki hrakin
með þeim rökum sem nú eru kunn, og hún kemur jafnt
heim við fornar athuganir sem nýja reynslu.
Ef það nú, hvað sem þessari sérstöku tilgátu líður,
er satt, sem eg hefl reynt að sýna fram á, að Darwins-
kenningin sé samsteypa ýmsra óskyldra hugmynda og að
eflaust megi hafna þeim öllum, en að sumir vísindamenn
haldi sumum þeirra fram, en hafni öðrum, hvernig stend-
ur þá á því að þessar hugmyndir hafa mæzt og samein-
ast í huga Darwins? Hvernig er kenning hans upprunn-
in? Þrenns konar áhrif virðast fyrst og fremst hafa
stuðlað að því að vekja hugleiðingar hans og stjórna þeim:
áhrif Malthusar, Paley’s og Lyell’s.
1. Malthus og hugmyndin um lífsbaráttuna. — 1 rit-
um Malthusar fann Darwin kenninguna um lífsbaráttuna.
Það var fyrir Malthusi hagfræðiskenning, ætluð til að
sanna, gegn Godwin og Condorcet, að mannkynið gæti
ekki tekið ótakmörkuðum framförum; Malthus vill sýna
að breytingarmöguleikum mannkynsins séu órjúfandi tak-
mörk sett af völdum náttúrunnar sjálfrar, en Godwin og
Condorcet töldu þá ótakmarkaða eins og sjálfa framþróun
skynseminnar, sem að þeirra dómi átti jafnvel að um-
breyta lífseðli mannsins og náttúrunni sem hann lifir og
hrærist í. Malthus heldur þá hugmyndinni um lífsbar-
áttuna fram gegn hugmyndinni um breytingu, um gagn-
gjörða ummyndun einnar sérstakrar lífveru; hann setur
lífseðli mannsins í mótsetningu við andlegt eðli hans, svo
sem orsök kyrstöðu gegn orsök breytingar. — En Darwin