Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1912, Side 6

Skírnir - 01.12.1912, Side 6
294 Skáldspekingurinn Jean-Marie Gnyan. að fegra það og bæta með því að flnna samræmi og tilgang í öllum hlutum. Hún fær oss til þess að finna til með öllu þvi, er hún fjallar um; en fyrir þetta stækkar hring- ur samúðar okkar sí og æ, svo að við að lokum finnum til með öllu því, sem getur haft nokkurt lífs ígildi. Af hverju sprettur nú þessi samúðartilfinning? Og hvernig stendur á því, að jafnt dauðir hlutir sem lifandi geta haft þessi áhrif á okkur ? Hvers vegna verður okkur ýmist létt eða þungt í skapi eftir því, hvernig veðrið er; og hvers vegna gleðjumst við og hryggjumst hver með öðrum ? Guvau er að minni hyggju einhver sá fyrsti, er sér nokkurt viðfangsefni í þessum spurningum og reynir að leysa úr þeim. Hlutirnir og hinar lifandi verur hafa áhrif á okkur fyrir hreyfingar þær, sem frá þeim stafa. Hreyf- ingar þessar valda jafnan einhverjum samsvarandi tauga- hræringum í okkur; en fyrir þessar taugahræringar kom- umst við í mismunandi skap eða geðhrif (stemning); og geðhrif þessi leggjum við svo ósjálfrátt inn í hlut þann eða persónu, sem áhrifin stöfuðu frá, og þykjumst við svo skilja hann alveg ósjálfrátt. Taugahræringu þá, sem af áhrif- unum stafar, nefnir Guyau sympathie nerveuse (Education bls. 13), en geðhrifin og athafnirnar, sem af þeitn spretta, samúðar-skiluing, samúðar-tilfinning og samúðar-athöfn {perception, motion, action sympathique; sbr. VArt\bls. 2 og síð- ar). Um efni þetta hafa ýmsir ritað síðan og nú síðast náms- bróðir minn, dr. Guðm. Finnbogason í doktorsritgerð sinni, en Guyau’s hefir hann þó ekki getið þar. Guyau nefnir ýms dæmi þessa samúðar-skilnings, sem jafnan sprettur af ósjálfráðri eftirlíkingu þess, er áhrif- unum veldur. Eru sum þeirra öllum kunn, en önnur miður. Þannig vita allir, að jafnvel barnið í vöggunni brosir við brosleitu og glaðlegu andliti, en fer að búa til skeifu og jafnvel að skæla, sjái það alvarlegt andlit eða byrstan svip. Yfirleitt má segja, að látbragð og framkoma ann- ara komi okkur alveg ósjálfrátt í líkt skap og þeir eru í, og að menn einmitt þess vegna skilji hver annan svo auð-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.