Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1912, Blaðsíða 78

Skírnir - 01.12.1912, Blaðsíða 78
366 Skynfærin og samlífið. um oss. Sá sem ekki horfir á annan, dregur sig að nokkru leytr undan sjón hans. Enginn er allur þar sem hann er sóður, meðan- hann horfist ekki í augu við mann. Sjaldan gera menn sér fullljóst hvernig öll viðskifti manna fara eftir vitneskju þeirra hvers um annan, hvort heldur er um augnabliksástandið eða insta eðlið. Augað beinist fyrst að andlitinu, en í andlitinu má sjá upplag mannsins og hvað lífernið hefir úr honum gert, hvernig fortíðin hefir mótað drætti hans. Vér þekkj- um því manninn af andliti hans, áður en breytni hans kemur í Ijós. Andlitið er ekki til f r a m k v æ m d a, eins og höndin eða fóturinn eða líkaminn í heild sinni, heldur segir frá. En það sem augað nemur í andlitinu, vitneskjan sem það veitir oss, er fremur kensl en þekking. Þótt vór einhvern veginn, og það furðu vel, vitum af fyrsta augnakasti við hvern vér eigurn, þá er ekki svo sem vér gætum komið að því ákveðnum hugtökum eða liðað það sundur í einstök atriði1); vér getum ef til vill ekki sagt hvort oss virðist maðurinn hygginn eða heimskur, góðlátlegur eða mein- bæginn, fjörlegur eða daufingjalegur. Alt þetta eru a 1 m e n n i r eiginleikar, sem hann gæti átt sameiginlega ótal öðrum möntium. En það sem fyrsta augnatillitið- fræðir oss um, er einstaklingseðlið sjálft, er síðan breiðir blæ sinn yfir alt sem vór fáum að vita um manninn. Andlitið s/nir oss ekki að eins hið varanlega eðli mannsins, heldur og augnabliksástand hans. Þar er samtímis og eins og ofið hvað í annað hið fasta og hið síbreytilega í háttum hans. Hór kemur fram hinn mikli munur á auga og eyra. Eyrað fræðir oss að eins um ástand mannsins á líðandi stund, en augað jafnframt um varanlegt eðli hans, er kemur fram í sviprúnum þeim er for- tíðin hefir markað í andlitið. Og venjulega er það svo, að vér fá- um hjá eyranu fræðslu um stundarástandið, en að augað staðnæmist mest við það sem fast er í svipnum. Þess vegna er alt annar blær á samlífi blindra manna við aðra menn, en þeirra sem heyrnarlausir eru. Fyrir blindum manni eru aðrir eiginlega að eins til á líðandi stund, í orðunum sem líða þeim af vörum. Blindur maður sór ekki öll þau spor fortíðarinnar sem *) Smbr. „Yilji eg lýsa vexti og slíku verða æðstu heiti að lasti. Og eg mæli í augnakasti orðlaus drottins verkin riku«.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.