Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 80

Skírnir - 01.12.1912, Page 80
:3«8 Skynfærin og samlifið. sér þannig, að augað snyst einkum að hinu fasba, eyrað að hinu breytilega. I samlífi manna kemur munurinn á augum og eyrum enn fremur fram í því, að augað getur ekki tekið nema gefa um leið, þar sem eyrað er eigingjarnt og tekur án þess að gefa. Sjálf lögun eyrans virðist vera s/nilegt tákn þessa; það er eins og þvl 8é aukið við höfuðið og þrokir þar óhreyfanlegast allra skynfæranna. En þessari eigingirni eyrans fylgir það, að það getur ekki eins og augað vikið undan eða lokast, og verður — úr því það tekur á annað borð — að sætta sig við að taka við öllu er kemur í ná- munda við það, og hefir þetta sínar afleiðingar í samlífi manna. Gefið og tekið í senn getur eyrað að eins í sambandi við raddfærin, og þó svo, að erfitt er að tala um leið og maður hlustar, eða hlusta meðan maður talar. En augað getur séð og sýnt í senn. Hins vegar getur eyrað, þrátt fyrir eigingirnina, að jafnaði ekki átt neitt út af fyrir sig. Yfirieitt er ekki unt að »eiga« annað en það sem sýnilegt er, af því að það sem að eins er heyranlegt hverfur með líðandi stund og er engin »eign«. Þeir sem við eru staddir, verða að heyra það sem fram fer umhverfis þá, og að einn nemur það eyrum, tekur það ekki frá öðrum. Þess vegna fær talað orð alveg sérstakan blæ, þegar það er sagt undir fjögur augu. Með því að taka annan á eintal, er það sem í eðli sínu er fallið til að verða eign svo margra sem vera skal, gert að einstaks manns eign. Yenju- lega geta ekki mjög margir séð sama hlutinn í senn, en mikill fjöldi getur samtímis heyrt hið sama. Beri menn saman áhorfendur í myndasal og áheyrendur í sönghöll. Af því að sóngurinn nær samtímis jafnt til allra viðstaddra, tengir hann geð þeirra miklu sterkari böndum en málverk á safni. Þá sjaldan mikill mannfjöldi getur samtímis sóð hið sama, hefir það líka sameinandi áhrif. Að allir geta samtímis sóð himininn og sólina, á að líkindum mikinn þátt í sameinandi áhrifum trúarbragðanna, því öll hafa þau staðið í einhverju sambandi við himininn og sólina. Að augu mannanna, sem að jafnaði geta ekki samtímis séð sama hlutinn eins, geta þó átt himin, sól og stjörnur saman, það hefir miðað að því að koma mönnum út úr þröngsýni einstaklingsvitundarinnar og sameina þá, en hvort- tveggja þetta er einkenni allra trúarbragða. Af þessum mun á augum og eyrum, sem nú hefir verið tek- inn fram, leiðir, að sambandið milli einstaklinganna verður mis- munandi eftir því hvort það á rót sína í sjón eða heyrn. Yerka- ,menn í verksmiðju, stúdentar í áheyrendasal, hermenn í herdeild

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.