Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 41

Skírnir - 01.12.1912, Page 41
Trúin á moldviðrið. Af öllum átrúnaði hefir mér ávalt fundist ljóss- og sól- ardýrkunin eðlilegust og skiljanlegust, og varla er sá mað- ur, að honum þyki ekki fögur frásagan um Þorkel mána: »Hann lét sik bera í sólargeisla í banasótt sinni, ok fal sik á hendi þeim guði, er sólina hafði skapat*. Og eng- an sálm þekki eg er mér þyki fegurri en þessi vísa um sólina: „Hvað er fegra en sólar sýn, þá sveimar hún yfir stjörnu rann? Hún vermir, hún skin og hún gleður mann“. Ljósið er vörður lífsins, og í rauninni eigum vér fyrst og fremst ljósinu frjálsi’æðið að þakka. Sá sem í myrkri gengur, getur ekki fremur en blindur'maður valið sér veg eða kunnað fótum sínum forráð. Til þess að velja sér veg, verður að sjá lengra en nefið nær. En ljósið ber oss boð um hlutina áður en vér rekum oss á þá, svo að vér get- um snúist við þeim á hagkvæman hátt, forðast hættuna og fundið það sem að haldi má koma Ljósið er þvi eins konar forsjón, er leiðir oss og veitir oss traust, auk alls þess unaðar er það færir oss. En oss eru ekki gefin aug- un ein til að sjá oss borgið; vér erum líka gæddir hugs- unargáfunni og beitum henni í sömu átt. Hugsunin lijálpar oss til að sjá það fyrir, sem augunum er varnað að sjá í svipinn, og hugsunina má telja því fullkomnari, sem hún er betri leiðtogi, en það er hún löngum að sama skapi sem hún er Ijós. Þetta orðaval, að vér köllum þá hugsun Ijósa sem hjálpar oss til að átta oss á hlutunum, sýnir að menn

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.