Skírnir - 01.12.1912, Blaðsíða 44
332
Trúin á moldviðrið.
bans eru þunglamaleg og óljós, sem hann að vísu biður
afsökunar á, en þó jafnframt er ögn hreykinn af og telur
sér til gildis gagnvart alþýðlegum heimspekingum upp-
fræð8lu-aldarinnar, það hefir orðið til þess, að eftirmönn-
um hans hefir algerlega tekist að koma þvi orði á, að
heimspekin væri eins konar dulvísindi, fárra manna færi,
ef til vill eins. Að segja um heimspekirit, að það væri
»ljóst«, var um eitt skeið svo fjarri því að vera lofsyrði,
að það var næstum því sama sem að segja að það væri
þunt og grunt, og voru Hegel og hans fylgifiskar óþreyt-
andi í því að klína þeim lýsingarorðum á alt það sem
ekki var markað skólahugtökum þeirra. En þessi beygur
við það að vera »ljós«, þessi borginmenska gagnvart »heil-
brigðri skynsemi«, þetta mont af moldviðri sjálfs sín,
hefir náð langt út yfir hóp hugrænu heimspekinganna og
þann tíma sem þeir sátu að völdum. Mér er það enn í
fersku minni, að fyrir mörgum árurn sagði maður einn,
sem var heimspekingur »að mentun« en ekki »af guðs
náð«, drýgindalega við mig: »já, við heimspekingar get-
um auðvitað hvenær sem við viljum komist svo langt í
einum tveimur setningum, að enginn geti fylgt okkur*.
Það voru eftirköst frá Hegels tímum, þegar meistarinn
hafði ekkert á móti því, að hver þöngulhaus, sem tamið
hafði sér mállýzku hans, teldi sig til hinna útvöldu and-
ans skörunga, er gefið væri að tala mál guðanna og skoða
alla leyndardóma veruleikans og jafnvel djúp guðdómsins
sjálfs. Ef ekki þyrfti annað en vöntun á »heilbrigðri
skynsemi« til þess að vera heimspekingur, þá væri Þýzka-
land auðugast allra landa að heimspekingum.
A Englandi og Frakklandi hefir heimspekin sneitt
hjá slíkUm villigötum. Það kemur af því, að hún hefir
þar alt af haldið velli i opinberu lifi og almennum bók-
mentum, en á Þýzkalandi er hún, eins og önnur vísindi
og vísindaiðkanir, bundin við háskólana. Því fylgir til-
hneiging til að mynda skóla, og hún er það fremur öllu
öðru, sem undirbýr jarðveginn fyrir þetta illgresi. Að
vísu hefir þetta samband vísindanna við háskólana í öll-