Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 64

Skírnir - 01.12.1912, Page 64
352 Nokkrar athuganir um islenzkar bókmentir á 12. og 13. öld. orð: »Þorlákr biskup ræddi grei n i 1 6 g a ö 11 leyndarmál fyrir Þorvaldi áðr þeir skildust, þau er honum máttu nauðsynleg þikkja, sum til leyndar en sum til uppburðar eftir sinn dag«. Hér er engum blöðum um það að fletta, a.ð naum- ast nokkur annar maður en allra nánasti frændi eða vin- ur Þorvalds heflr getað vitað um þetta, að biskup hafi sagt honum ýms leyndarmál, er sum mátti birta en sum ekki eftir lát biskups, því að það er ekki sennilegt, að jafn merkur maður sem Þorvaldur Gissurarson var, hafl farið að fleipra um þetta samtal sitt við biskup við óvið- komandi menn, eða farið að stæra sig af því, hversu mikið traust biskup sýndi honum á deyjanda degi. En samtali þessu var svo háttað, að enginn gat vitað að hverju það hné nema Þorvaldur einn. Og sennilegast hefir hann engum frá því sagt nema söguritaranum ein- um, til afnota við samning sögunnar. En að Þorvaldur sjálfur sé ekki höfundur sögunnar er ljóst, því að hann mundi ekki hafa hælt sjálfum sér, eins og gert er í þess- um kapítula sögunnar og áður er getið. En það gat t. d. bróðir hans gert, og all-eðlilegt, að Þorvaldur segði bróð- ur sínum frá því, er honum og biskup hefði farið á milli. Eg hygg því,og til þess eru enn sterkari líkur en þessi, eins og siðar getur, að höfundur Þorlákssögu hinnar yngri sé einmitt bróðir Þorvalds: Hallur prestur Gissurarson lögsögumaður 1201—1209, síðar ábóti á Helgafelli 1221 og Þykkvabæ í Veri 1225+12301). Hann mun fæddur um 1160 og mun hafa ‘) Ártíð hans er 18. febrúar (sbr. ártiðaskrá frá Helgafelli i ísl. Ártiðaskrám bls. 84, 88, 95—96.). í ábótatalinu A. M. 415 4 to. frá c. 1312 (Fbrs. III, 28 etc.) og i ábótatalinu aftan við Rimbeglu (A. M. 731 4 to. Fbrs. III, 310 etc.), sem eru mjög svipuð að stofni, er Hallur að eins talinn ábóti í Þykkvabæ i Yeri, en slept úr ábótaröðinni á Helgafelli. Af þessu ályktar Konráð Maurer, er að 'eins þekkir ábótatalið i Rim- neglu, að nafn Halls hafi færzt til i skránni, og að hann hafi aldrei ver- ið ábóti i Veri, heldur að eins á Helgafelli (sbr. K. M. Island von seiner ersten Entdeckung etc. Miinchen 1874, hls. 246 n. m.). En þetta er skakt hjá Maurer, því að í ábótatalinu gamla í Stokkhólmshók 5 fol., sem er nákvæmast

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.