Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 74

Skírnir - 01.12.1912, Page 74
362 Arnarhreiðrið. ast, og var hann aftur erfiðari en verið hafði um hríð. Efst á stöplinum var arnarhreiður, og sat þar örn, sem eg komst ekki hjá að heimsækja,. en foreldrar hans voru að hringsóla uppi yfir mér og gullu ámátlega, hræddust auð- sjáanlega að Erlingi þeirra kynni að standa háski af mér; en eg var aftur að hugsa um það stundum, hvað það gæti orðið óskemtilegt, ef ernirnir sæu hvað auðvelt þeim væri að sópa mér burt af klettinum, sem eg var að klifrast upp eftir. Eg er ekki viss um að verkfæralaust yrði kom- ist upp á þenna stöpul, ef ekki hefði arnarhreiðrið verið þar, en niður undan hreiðrinu voru tór af mjög öflugu blágrænu grasi, sem var mesta furða að sjá spretta þarna á gnýpunni, að heita mátti út úr berginu, og mátti hafa sig upp með þvi að taka í grastórnar. Loks var eg kom- inn svo nálægt hreiðrinu að við horfðumst í augu örninn og eg, og fór hann þá af hreiðrinu og yflr á þessa spöng, eða þetta eiði, sem eg gat um áðan; var hreiðrið raunar ekki annað en grunn skál, alveg skjóllaust, enginn um- búnaður; og svona harðger þyrfti helzt að vera, eiús og Ari er, til að njóta til fulls fegurðarinnar á íslandi. Hjá hreiðrinu lágu ræflar af sjófuglum og einn kindarhaus, hyrndur. Eg vildi nú komast yflr á aðalfjallið, en örn- inn ungi var því til fyrirstöðu; hótaði eg honum öllu illu, ef hann færi ekki, en hann glenti aftur ginið á móti mér og var hinn illúðlegasti að sjá. Eg hafði nú að vísu ham- ar með mér, sem mér hafði legið við að kasta burt á leiðinni upp, því að hann fór illa i vasa, en eg þurfti oft að nota báðar hendur; en bæði var, að hamarinn hefði ekki komið aftur, eins og hamar Þórs, hefði eg kastað honum, og svo gaf eg ekkert um að vinna Erlingi mein, vildi að eins ekki að hann væri mér til farartálma. Þeg- ar annað hreif ekki af því sem fyrir hendi var, setti eg loks á hann kindarhausinn, og þá breiddi hann út væng- ina og flaug burt og settist á klett neðar í fjallinu. En mér létti nú heldur en ekki og gekk eg hiklaust eftir eiðinu og yfir á aðalfjallið. Þarna uppi á fjallinu var eg staddur nærri því eins

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.