Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1912, Side 79

Skírnir - 01.12.1912, Side 79
Skynfærin og samlifið. 367 ægir aaman < andlitinu og vekja óviaau, og ef til vill er af því sprottin sú friðaemi, ró og vinaþel til annara, sem oft er í fari blindra manna. Andlitið er svo mikil ráðgáta einmitt vegna þess, að það getur látið svo margt í ljós. Yfirleitt skýrum vér það sem vór sjáum á öðrum með því sem vór h e y r u m til þeirra hið gagnstæða er miklu sjaldgjæfara. Þess vegna er sá sem sór án þess að heyra íniklu ver staddur, miklu ráðfærri og órólegri en hinn, sem heyrir án þess að sjá. Þetta atriði kemur fram í sam- lífi manna í stórborgunum. Þar sjáum vér aðra miklu meira en vór heyrum þá — í samanburði við það sem á sór stað í smábæjunum. Það kemur ekki eingöngu af því, að vór í smábænum hittum á götunum tiltölulega marga sem vór þekkjum og eigum orðastað við, eða minnumst af sjón hvernig þeir eru í raun, heldur miklu fremur af hinu, hvernig samgöngufærunum er háttað. Áður en götuvagnar og járnbrautarvagnar komu á gang, á 19. öld, þurftu menn ekki að jafnaði að vera með öðrutn mínútum eða stundum saman áu þess að tala við þá. I nútíðarlífinu verður það meir og meir sjónin sem tengir skynjanabandið manna á milli, og hlýtur það að breyta samlífstilfinningum manna. Að það sem vór sjáum á mönnnm er tvíræðara en það sem vér heyrum til þeirra, styður að því að gera lífið nú á tímum meir á huldu en áður, gera menn áttavilta í sam- lífinu og einmanalegri, þar sem alstaðar eru lokaðar dyr fyrir. Það bætir upp hverfleik heyrnarskynjanana, að minnið geymir betur heyrt en sóð. En það er auðveldara að ljúga að eyra en auga, vegna þess að það sem vér heyrum er ekki eins varanlegt til skynjunar eius og það sem vér sjáum. Samlíf vort yrði gjör- breytt, ef skynjanir eyrans væru eins varanlegar og augans, en sjónarskynjanirnar eins hverfular og heyrnarskynjanirnar. Vór spyrjum í hvívetna um tvent: hið verandi og hið verð- andi, og svo gerum vór um mennina. Vór viljum vita: hveruig er þessi maður, hvert er hið varanlega eðli hans ? Og: hvernig er hann núna, hvað er hann að hugsa, hvað vill hann, hvað er hann að segja? Og yfirleitt er það sem vór sjáum á manni það sem varanlegt er í honum. í andliti hans má lesa sögu hans, eins og jarðfræðingurinn les jarðsöguna á þverskurði jarðlaganna. Svip- breytingarnar eru ekki nærri því eins margháttaðar og raddbreyt- ingarnar. Vór heyrum á manni augnabliksástandið, straum sálar- lífs hans. Hvergi er hið fasta og hið fljótandi eins innilega sam- elnað og í manneðlinu, en augað og eyrað hafa skift verkum með

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.