Skírnir - 01.12.1912, Síða 84
Um Völuspá.
Kafli úr firirlestri eftir Björn M. Olsen.
Hefur Völuspá orðið firir áhrifum af kristnum hugmindum 1
Firsti kafli k v æ ð i s i n s, lísingin á sköpun heimsins
og saga hans og goðanna alt til nútíðarinnar, virðist vera í samræmi
við bað, sem vier vitum frá öðrurn heimildum um trú feðra vorra
{1,—32. er.)
Þá kemur í Hauksbók í firsta sinni stefið: Geyr Garmr
m j ö k osfrv. Hugsun : Ragnarök eru í nánd! Þetta er aðalhugs-
un kvæðisins. Þv/ er stefið úr þessu altaf endurtekið, að því er
virðist, með 4 erinda millibili, í síðasta sinn eftir að sólin er sortn-
uð, jörðin sokkin í mar og Fenrisúlfurinn drepinn. Þessi hugsun,
að heimsslit sjeu firir höndum, higg jeg standi í sambandi við þá
hræðslu, sem drotnaði í hinum kristna heimi, að heimsslit ætti að
koma árið 1000, og því held jeg helst, að Vsp. sje ort rjett firir
1000. Jeg geng að því vísu, að trúboðarnir, sem komu hingaö um
það leiti (Stefnir, Þangbrandur og ef til vill fleiri), hafi notað sjer
þennan kvíöa firir heimsslitum í trúboði sínu, og hvað var eðlilegra
enn aö heiðnir menn settu þennan kvíða í samband við sínar eigin
hugmindir um ragnarök og irði gagnteknir af sömu hræðslu?
Jeg skal hjer undir eins taka fram, að mjer virðist ekkert
benda til, að höf. Vsp. hafi verið lærður rnaður í ritningunni eða í
kristilegum miðaldaritum. Þá þekking, sem hann bersínilega hefur
á kristnum hugmindum um heimsslit og efsta dóm, hefur hann ekki
fengið með því að snuðra 1 hinum ifirgripsmiklu ritum biblíunnar
og síðari kristinna höfunda. Vjer þurfum því ekki og eigum ekki
að leita í öllum þeim aragrúa af ritum eftir firirmindum Völuspár.
Til að skíra þau áhrif, sem kvæðið hefur orðið firir frá kristninni,
nægir að taka að eins tillit til helstu atriðanna í hugmindum krist-
inna manna um heimsslit og efsta dóm, þeirra sem líkur eru til að
trúboðarnir hafi prjedikaö, og þá sjerstaklega til þeirra meginatriða,
sem koma fram í Guðspjöllunum og Opinberunarbókinni.