Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 92

Skírnir - 01.12.1912, Page 92
380 Ritfregnir. Pilatusar svarað, bæði skyrt og skáldlega. Hér er rakið eðli og mikilvægi talningar og talna. Þar segir höf. frá skemtilegri sögu, er skýrir efnið ágætlega. Hún er af manni, sem kutini ekki að telja, en þnrfti að telja fó, og vortt þá fengitt spörð í vetling, og átti hann 11S kasta einu sparði í hverja kind. Er þetta sagt til marks um, hve skemtileg bókin er. Þar er og kafli um taugakerfi mannlegs likama. Þeim þætti hefði mynd af því átt að fylgja. Það er eins og að lesa landafræði án landabrófs að lesa hann svotta uppdráttarlausan. Samt er kaflinn skýr og auðvelt að vita, hvað höf. á við. Langfróðlegasti þátturinn í bókinni þótti mér kaflinn um líkamann og vitundina. Hér er og rætt um þá ráðgátu, er leyn- ist að líkindum einhverstaðar í hugskoti allra hugsandi manna, veldur þar óeirð og óróa, þótt þeim sé það ekki alt af ljóst, hver óróavaldurinn er, að það er þessi ráðgáta, sem kyndir þann sár- inda-eld. Eftir skoðunum vorum um sambandið milli líkama og vitundar fara hugmyndir þær, er vér sköpum oss ttm tilgang eða tilgangsley3Í lifsins eða örlög vor, er vér erum horfnir inn um hið dimma hlið, þaðan sem enginn á útkvæmt. Bók þessi flytur og nýjar kenningar og merkilegar um þetta efni. Höfundur þeirra er Henri Bergson, franskur heimspekingur. Hann er af sænskum ættum í föðurkyrt, og þeir sem einhverja nasasjón hafa af sænsk- um bókrnentum og andlegu lífi Svía, munu þykjast sjá ættarsvip- sænks anda á kenningum hans og skoðunum, eins og höf. iýsir þeim. Af því að allur þessi kafli er hinn merkilegasti. ætla óg að rekja efni hans. Spurningarnar eru: Hvaðan kemur vitund minni myndir hennar af hlutum og beimi? Hvað er um minnið, sem einn kirkju- faðirinn sagði, að væri sálin sjálf? Hvert er samband vitundar minnar og líkamans, einkum taugakerfisins? Eg býst við, að marga sundli, er þeir lesa um svör Bergsotis með eftirtekt og umhugsun. Hór erum vór í einum völundargöngum lifsgátunnar. Svarið við fyrstu spurningunni er, að eg geti ekki að svo miklu leyti sem meðvitund min ttm einhverja mynd er skynjun, greint haua frá myndinni sjálfri. )>Skynjan mín og hlutirnir, sem eg skynja, eru fyrir mér óaðgreinanlegir. Um endurminnitiguna er kent, að enginn geti sagt, hvaðan hún komi, l/kt 'og Kristur sagði um vindinn. Það er í rauuinni tilgangslaust að spyrja þatinig um þær. Orðið h v a ð a n á við stefnur, áttir, ofan, neðan, aust- an, vestan, o. s. frv. Hugmyndir koma ekki úr neinni átt, sem veður og vindur, ekki heldur að ofan, sem regn og ól, né að neðan, sem gras og lindarvatn. »Þær ertt þarna, eg fyrirfinn þær á þess- ari stund«. En hvernig er þá fortiðin geymd? Það hefir verið kent, að hugsanir vorar og endurntinningar byggju í heilanum. Víst er um það, að eitthvað er geymt, og af rnörgu virðist mega ráða, að alt það só geymt, er drífur á daga vitundar vorrar. Margir hafa heyrt þess getið um metin, sem voru komnir að druknun, að þeim fanst, sem þeir sæu yfir liðna æfi í einttm svip. En hvar er það geymt, sem er geymt, en ekki gleymt? I heilanum? Nei, segir

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.