Fjölnir - 01.01.1844, Síða 39
39
3>aö hefur eiiikum eflt útbreiðslu bindindis-fjelaga, að
Vesturheiinsmenn hafa látið prenta á hverju ári skýrslur
um athafnir Qelags síns, og búið síðan til ágrip af þeim,
og látið preuta í bók sjer, sem heitir “Saga liindindis-
fjelaganna í Vesturheimi”. Til þess að sem flestir gætu
haft not af bók þessari, sem í fyrstu er rituö á ensku,
hafa Vesturheimsmenn sent erindreka sína til flestra landa
í Norðurálfu, og Iátið snúa henni, á sinn kostnað, á flestar
tungur, og útbýtt henni síðan að gjöf. Ár 1841 var henni
snúið á dönsku, að tilhlutun Vesturheimsmanna, og prentuð
í Kaupmannahöfn á kostnað þeirra, og skipt með Dönum
og Norðmönnum, og 100 bækur sendar til Islands. 5''í
má nærri geta, að 100 bækur, á jafnstóru landi og Island
er, verða að koma nokkuð strjált niður, og þar að auki
er bókin á dönsku, svo allur þorri alþýðu getur eigi haft
hennar nokkur nol. Af því vjer höfum ekki tækifæri til
að snúa bók þessari allri á íslenzku, þó vjer álítum það
mesta þarfaverk, Iátum vjer oss nægja að íslerizka að eins
lítinn kafla hennar, til að gefa alþýðu á Islandi dálítið
sýnishorn af því, hvert far þjóð sú, er nú er talin einhver
hin merkasta í heimi, hefur gjört sjer um að breiða út
liindindi í drykk alstaðar um víðan heim, og hverjar á-
stæður hún ber fyrir sig. Til þessa hefur oss þótt bezt
fallið umburðarbrjef það, er áður er getið, og lesa má í
3. þætti bókarinnar (bls. 77—99). 3?að cr hjerumbil svona
á íslcnzku:
Virðuglegu vinir! Vjer höfum ráðizt i mikinn hlut og
þarflegan; en til að framkvæma hann þurfum vjer öflugrar
liðsemdar við hjá yður. Áform vort er að breiða út bind-
indi í drykk, eigi að eins á voru landi, heldur og um
allan heim. Oss hefur þegar tekizt, bæði með ritum vorum
og erindrekum, að snúa stórum alnrennings áliti, og breyta
mjög lifnaðarháttum manna, að því Ieyti sem víndrykkju
snertir. Meir enn þúsund sinnum þúsund manna í Banda-
ríkjunum hafa þegar heitið að bergja eigi á nokkrum