Fjölnir - 01.01.1844, Síða 43
43
æsku hans. En synir hans, er drukku í sig eitur Jietta,
áður enn þeir voru orðnir fullvaxta, þeir hlutu að verða
J)ví að hráð. Nú spyrjum vjer: hvernig mun fara fyrir
nánustu afkomendum vorum og þeim er síðan fæðast, ef
spilling þessi fer þannig í vöxt meðal barna vorra?
Dr. Rubin Mussey, forseti í læknafjelaginu og kenn-
ari í líkskurðarfræði og sáralækningum á Dartmowth-
háskola, og einhver merkasti læknir í landi voru, kemst
svo að orði um þetta mál: “hvernig stendur”, segir hann,
“á töfrakrapti þeim í áfengum drykkjum, er alla menn
tælir? Jeg ætla að reyna að skýra frá {)ví. Jegar drykkir
þessir eru komnir í magann, berast þeir þaðan út í blóðið,
og berast í blóðinu um allan líkamann, gegnum lungun,
vöðvana, heilann og alla aðra parta líkamans, svo að
engin æð eða taug kemst undan áhrifum þeirra; og hvernig
eru þessi áhrif? þau trufla lífsstörf líkamans”.
Dr. Ebenezer Alden, nafnkunnur læknir í Massachusets,
segir svo: “Áfengir drykkir hafa sömu áhrif og eitur á
alla parta líkamans, er þeir ná til. I engum þeirra nema
þeir svo lengi staðar, eða veikja svo mjög lífsmegn hans,
að hann geti ekki flutt þá lengra; heldur æða þeir úr
einum stað í annan gegnum allan líkanrann, og hvar sem
þeir konra, raska þeir og róta störfum þeim, er hverjum
parti í líkamakerfinu eru ætluð, unz lífsaflinu tekst að
rýma burtu þessum háskalega óvin. Jegar lífsmegnið er
svo mjög veiklað, að menn geta eigi lengur verið án
þessa ólyfjans, er dauðinn fyrir dyrum, og hinn síðasti
lífsneisti þá og þegar kulnaður. Heilbrigðum mönnum er
ætíð hættulegt að drekka áfenga drykki, hvað lítið sem
er, því þeir eru óvinir mannlegs lífs, og hversu lítið sem
á þeim er bergt, spillir það heiisu manna og lífi; þeir
veikja en styrkja ekki, sýkja en lækna ekki, deyða en
lífga ekki”.
Dr. Reuben Mussey, er fyr var getið, kemst svo að
orði hjer um : “Er “alkóhol” nauðsynlegt fyrir hcilan og