Fjölnir - 01.01.1844, Side 47
47
nftura landsins, höföu 67 orðið áfengum drykkjum að
bráð, að sögn þeirra manna, er eiga að rannsaka manna-
lát þau, er annaðhvort bera snögglega að, eða eru af
mannavöldum. Níu tíundu hlutir þeirra, er snöggt hafði
orðiö um, þegar þeir höfðu nýdrukkið kalt vatn, höfðu
valdið dauða sínum með því að neyta áður áfengs drykk-
jar óhóflega. I flestum borgum þeim, er kólerasóttin
gengur í, er nú (1832) fer yfir alla Norðurálfuna, og
vofir einnig yfir landi voru, eru fjórir fimmtu blutir þeirra,
er deyja úr sýki þessari, drykkjumenn. Hvort sem vjer
því látum sannfærast af reynslu sjálfra vor og annara um
áhrif áfengra drykkja, eða vjer förum að sögn læknanna,
þá sjáum vjer, að áfengir drykkir eru eitur, og deyða
bæði líf og heilsu manna, og þeir, sem neyta drykkja
þessara, stytta líf sitt um 10—50 ár. Eptir hinum
nákvæmustu dauöaskrám, og sögn hinna merkustu lækna,
hefur þetta komið fram við meir enn 30,000 manna árlega
í Bandaríkjunum. Og hver mundi sá af oss, er ekki gæti
á meðal þeirra fundið einhvern kunningja sinn, góðan vin
eður ættingja ?
4. Neyzla áfengra drykkja veikir og truflar skyn-
semina. Af 781 vitstola mönnum, er voru í ýmsum vit-
firringahúsum landsins, hafði, að því sem frændur þeirra
sjálfra sögðu, ofdrykkja steypt 492 í ógæfu þessa, og,
að sögn lækna, mörgum öðrum. Einhver binn ágætasti
læknir, sem einkum hefur fengizt við þesskonar veikindi,
og er mjög reyndur í því efni, segir það með öllu víst,
að meir enn helmingur, jafnvel næstum þrír fjórðu hlutir
allra óðra manna, er hann hafi haft færi á að kynna sjer,
hafi orðið óðir af mikilli neyzlu áfengra drykkja. “Náttúru
til æðis og ástríðu til drykkjuskapar” segir Dr. Peirson,
“leiöir hvort af öðru.” Dr. Kirk segir: “Afengir drykkir
eru sljófgandi efnis, og Iíkjast svefnsafa (opiitm); sá er
einn munurinn, að áfengir drykkir sýna miklu fljótar
æsandi áhrif sín á líkamann enn svefnsafinn. Fyrst fara