Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Síða 8
8
LANDSSTJÓRN.
sem endrarnær, og má helzt til nefna framhald veganna á
Holtavörðuheiði, Grímstungnaheiði og Kaldadalsvegi. Sömu-
leiðis var og gjörr vegur yfir Kamba, en ]iað er vegurinn upp á
Hellisheiði að austan. Auk þess hafa víða verið gjörðar vega-
hætur í sveitum, á sýsluvegum og hreppavegum, og hefir sumt
af því verið allmikið mannvirki, en lijer cr eigi rúm til þess
að telja það upp, enda gjörist þess eigi þörf.
Póstgöngur um landið hafa orðið fyrir litlum hreyting-
um, og þær breytingar, sem orðið hafa, t. d. á brjefhirðingar-
stöðum og aukapóstferðum hafa eigi svo mikla þýðingu, að það
taki því að telja það upp hjer. Gufuskipaferðirnar í kring
um landið hafa menn verið heldur óánægðir með, og þótti
þeim vera hagað þannig, að þær væru fremur Reykvíkingum og
kaupmönnum í hag, en landsmönnum sjálfum. Kvað svo rammt
að þessari óánægju manna, að þingið skarst í leikinn, og samdi
ferðaáætlun, sem það áleit landsmönnum miklu haganlegri en
hinar fyrri, og’skoraði á landsstjórnina að hlutast til um, að
þeirri áætlun væri fylgt; cf þessu yrði ei framgengt, vildi þingið
skora á landsstjórnina, að semja við stórkaupmann E. Slimon
í Leith eða einhvern annan, er byði jafngóð kjör sem hann.
Slimon hafði nl. áður boðið landsmönnum að senda þeim póst-
skip með langtum haganlegri áætlun, en hin danska hafði
verið, fyrir 18000 kr. tillag af landsfje. Sömuleiðis lagði al-
þingi það til, að stjórnin hlutaðist til um, að seglskip yrði
sent upp til íslands, annaðhvort frá Danmörku, Skotlandi eða
Hjaltlandseyjum síðast í janúarmánuði, þannig að það gæti
aptur farið úr Reykjavík 4. dag febrúarmánaðar. Virtist svo,
sem að full nauðsyn væri á, að skip færi milli íslands um þann
tíma sem endrarnær. Frá þessu verður betur skýrt í næstu
ársfrjettum.
Laxveiðar Thomsens í Elliðaánum hjeldu áfram
sem áður þannig, að hann þvergirti báðar kvíslar árinnar eða
ánna, og þóttist einn oiga hvern lax, sem í árnar gengi. I*að
er alkunnugt, hve illa þessi veiðaraðferð Thomsens hefir verið
þokkuð, og hefir það opt lýst sjer í því, að bændur liafa veitt
kistuni hans aðgöngu á nóttum og rofið þær. I3etta varð og
nú sem áður, og voru kisturnar rofnar þrisvar um sumarið; og