Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Síða 22
22
ATVINNUVEGTR.
mánuði týndust tveir monn :if báti í Steingrímsfirði og fórst
bátur með 3 mönnum á Hrútaíirði. 8. clag nóvembermán-
aðar var afspyrnurok fyrir Norðurlandi, og fórust þá tveir
bátar á Skagaströnd, með 5 mönnum hvor, og sama dag týnd-
ust 2 bátar nr Steingrímsfirði og aðrir tveir af Skagafirði.
Eigi hcfur frjetzt, hve margmennir þeir hafi verið. Slysfarir í
ám og vötnum hefir ei frjetzt greinilega um, og eigi heldur
um það, hvort menn liafi orðið úti: en víst er að það urðn
einhverjir, eins og vant er að vera. Af annarskonar slysum
hefir ei fijetzt.
III. M o n n t u n.
Þetta ár voru að eins þrír kandídatar vígðir til presta:
1. dag júnimánaðar var Þorsteinn Benidiktsson vígður til
Lunds og Fitja í Borgarfirði; 14. dag s. m. var Olafur Olafs-
son frá Melstað vígður til Brjánslækjar og Haga á Barðaströnd,
og 31. dag ágústmánaðar var Einar Jónsson vígður til Fells
og Höfða í Skagafjarðarsýslu.
Embættisprófaf prestaskólanum stóð 18.—
23. dag ágústmánaðar, og útskiifuðust þrír: Einar Jónsson,
Morten Hansen og Jóhann Porsteinsson, allir með fyrstu ein-
kunn. Um haustið voru 6 eptir frá fyrra ári, og 5 bættustvið
af stúdentúm frá skólanum og einn síðar, sem hætti við nám
á læknaskólanum, og voru þannig 12 á prestaskólanum vetur-
inn 1879—80
Á læknaskólanum tók enginn burtfararpróf þetta ár,
en einn hætti við að vcra á honum með öðru móti og leitaði
til prestaskólans; einn stúdent bættist og þangað, svo að á
honum urðu G stúdentar veturinn 1879—1880.
Tveir íslendingar tóku embættispróf við háskólann í Kaup-
mannahöfn í júnímánuði: Einar Thorlacíus í lögum með 2. ein-
kunn, og Sigurður Sigurðsson í málfræði með 1. einkunn.
Próf í forspjallsvísindum við prestaskólann tóku presta-
skólastúdentarnir Árni Borsteinsson, Eiríkur Gíslason, Halldór
forsteinsson og Kjartan Einarsson, allir með fyrstu einkunn