Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Side 36

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Side 36
36 MANNALÁT. Honum liafði græðzt allmikið fje, því að kann hafði verið alla æfi manna sparsamastur og samheldnastur á eigum. Voru þær að honum látnum 30,200 króna. Eptir hann látinn fannst erfðaskrá (testamenti), og var í henni ákvarðað að stofna af fje þessu styrkt- arsjóð handa þeim, er stunda vildu heimspeki. Eptir skránni skal sjóður þessi ávaxtast, þav til vextir af honum nema eigi minnu enn 2000 krónum árlega, og skal þá verja vöxtunum til styrktar þeim, er nema vilja heimspeki og heimspekileg vísindi, svo sem spekúlatíva og explíkatíva lógík, sögu hcimspekinnar, og umfram alt sálarfræði (psychologi), ef hann er vel lagaður til þess. Skilyrði fyrir því, að geta fengið styrk þennan eru þessi: 1. að hafa tekið próf í heimspeki með lofseinkunn, annaðhvort við hákólann í Höfn eða í Reykjavík; 2. að vera þekktur að því, að vera sjerlega hneigður fyrir heimspeki; 3. að vera reynd- ur að því, að vera ráðsettur og vandaður maður. Um styrk þennan skal sækja til iandshöfðingja, og veitir hann styrkinn með ráði kennslumálastjórnendanna hjer á landi, en þeir leita álits þeirra þingmanna, er vit hafa á forspjallsvísindum, og þekkja sækjanda; skal þetta gjört, til þess að styrkurinn verði ei misnotaður. Sækjandi skal síðan vera eitt ár við Kaup- mannahafnarháskóla, og heyra fyrirlestra tveggja prófessóra um tvö missiri, og fá síðan vitnisburð hjá þeim. Síðan skal liann stunda heimspeki við einhvein af hinum heldri háskólum í Þýzkalandi um tvö ár, og heyra stöðugt fyrirlestra tveggja prófessóra í sömu vísindum, og sömuleiðis fá sjer vitnisburð frá þeim. Fjórða árið skal hann njóta sama styrks á íslandi, og vera í Keykjavík þann vetur, og halda opinbera fyrirlestra um einhverja grein heimspekinnar eða eitthvert af liinum frægri lieimspekisritum, mönnum til leiðbeiningar. Fær hann þannig styrkinn 4 ár, en svo ei lengur. Styrkurinn skal veitast þriðja hvert alþingisár, eða á sex ára fresti. Skrá þessi er dagsett 15. ágúst 1878. Þess skal samt getið, að meðan systir hins látna er á lífi, nýtur hún 400 króna árlega af vöxtum þessum. IJetta ár andaðist og sá maður, sem öhugast og þrótt- mannlegast hefir barizt fyrir frelsi og rjettindum ættjarðar sinn- ar, sem það er þakka, sem íslendingar hafa eflzt og aukizt nú

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.