Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 42
42
LANDSSTJÓRIV.
lög þau, er alþingi 1879 hafði samþykkt um skyldu presta að
sjá ekkjum sínum borgið með fjárstyrk, nje lög um brúargjörð
á Pjórsá og Ölfusá að verða staðfest af konungi.
í barnauppfræðingarlögunum er prestum
gjört að skyldu að sjá svo um, að öll þau börn, er til þess
virðast hæf fyrir greindar sakir, læri að skrifa og reikna svo,
að þau læri ijórar höfuðreglur í heilu og brotum. Ef foreldrar
eða þeir, sem fyrir barninu eiga að sjá, vanrækja þetta eða vilja
eigi, má taka börnin frá þeim og láta kenna þeim á þeirra
kostnað. — Eptir prestakallalögunum var brauðum fækk-
að við samsteypur og aðrar breytingar úr 170 niður í 141, og
skyldi sú samsteypa færast í lag við prestaskipti þau, er næst
yrðu. Þau brauð, er of lítil þóttu og tekjurýr, eru bætt upp
með því, að taka frá stærri brauðunum, og jafna þau þannig
nokkuð. Allt fyrir það eru þau nokkru misjafnari en gjörtvar
ráð fyrir í áliti nefndarinnar 1878. Ef ljenskirkja er lögð nið-
ur, tilfellur hún með öllu sínu höfuðkirkju þess prestakalls, er
hún er lögð við. Ef söfnuðir vilja breyta skipun sókna eða
brauða, og hjeraðsfundur samþykkir það, og sömuleiðis efhjer-
aðsfundur samþykkir breyting á takmörkum sókna eða vill
leggja niður kirkju, færa hana tileða byggjahana að nýju, skal
landshöfðingi leyfa það með biskups ráði. — Eptir lögunurri
um eptirlaun presta skulu þeir fá eptirlaun, er nema 10
kr. fyrir hvert þjónustuár þeirra. hin ef þeir slasast eða geta
ei sakir ósjálfráðrar vanheilsu þjónað, skulu þeir fá 250 kr. í
eptirlaun, þó að þeir hafi eigi þjónað svo lengi sem því nemur.
Uppgjafaprestar fá laun sín af brauði því, er þeir voru síðast í,
ef það er svo stórt, að tekjur þess verði ei minni en 1200 kr.
fyrir það, en úr landssjóði ella.
Eptir lögunum um safnaða - og hj eraðanefndik
skal vera sóknarnefnd í sókn hverri og hjeraðsnefnd í prófasts-
dæmi hverju, til þess að ræða kirkjuleg málefni sín. í sóknar-
nefndum eru þrír menn kosnir til árs hvers, og presturinn
sjálfkjörinn. Skal að minnsta kosti haldinn einn fundur ár hvert
í júnimánuði, og kjósa þá að nýju. Starf nefndarinnar er að
aðstoða prestinn í að halda góðri reglu og siðsemi í söfnuðum,
annast um fræðslu ungmenna o. s. frv. Sóknarnefnin á rjett á