Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Page 48
48
LANDSSTJÓRN
og verksvið þessa forna kirkjuþings; nefnd sú, er kosin var ár-
inu áður (Þórarinn prófastur Böðvarsson, Hallgríinur prestur
Sveinsson og Heigi prestaskólakennari Hálfdánarson) hafði eigi
lokið störfum sínum, að gjöra út um þetta efni, og var því
aukið tveim mönnum í nefndina, Valdemar Briem og ísleiti
presti Gíslasyni. Sjerstaklega var þessari nefnd falið á hendur
að semja frumvarp um laun prófasta, er leggja skyldi fyiir
næsta þing; biskup lagði það til málanna, að settir væru ijórð-
ungsprófastar, er hefðu eptirlit með prestum og kirkjum hver
í sínum landsfjórðungi, í umboði biskups. Varð þetta mál ei
útrætt sem ei var von til. Síðar bar í tal óregla, t. d. of-
drykkja presta, sem frjettist af þeim út um landið, og var á-
litið nauðsynlegt að áminna þá um að hegða sjer guðrækilega
og siðsamlega sem prestum sómdi, og var próföstum ætlað að
áminna þá. Eptir þessi málalok var stefnunni slitið.
Almennt fólkstal fór fram hjer á landi, eptir boði
ráðgjafans og landshöfðingja, 1. dag októbermánaðar, og skyldi
það útfært með mikilli nákvæmni, sem vant er að vera á 10
ára fresti.
Á þessu ári varð sem vant er nokkur breyting á embætta-
skipun, og voru þær breytingar þessar:
30. dag júnímánaðar var settur sýslumaður Einar Thorla-
cius skipaður sýslumaður í Norður-Múlasýslu frá 1. ágúst að
telja.
Sama dag var yfirrjettarmálafiutningsmaður A. L. E. Fisch-
er skipaður sýslumaður í Skaptafellssýslu frá 1. ágúst.
13. dag septembermánaðar setti landshöfðingi fyrrum
sýslumann forstein Jónsson málaflutningsmann við landsyfir-
rjettinn frá 1. okt., þannig að hann missir jafnmikils í af eptir-
launum sínum sem málaflutningslaunum nemur; s. d. var lög-
gilding frá 5. okt. 1878 lianda Jóni ritara Jónssyni numin
burt.
í stað Hannesar Árnasonar var prestur og prófastur Eirík-
ur Briem á Steinnesi skipaður annar kennari við prestaskólann
29. júlí.
30. dag marzmánaðar var Helgi læknir Guðmundsson
skipaður læknir í 10. læknishjeraði (Siglufjarðarumdæmi).