Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Page 74

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Page 74
74 KONNUÐ FJOLL. tveir ferðaœanna austur eptir jöklinum til Kistufells, en tveir meðfram jöklinum að neðan, til að svipast eptir hagblettum; fundu þeir sólarhringshaga handa 30 hestum þar við tjörn eina, er þeir nefndu Gæsavatn af gæsafjöðrum, er þeir fundu þar. Færi var hið bezta á jöklinum, líkt og á ísum á vordag. Stund- um þurftu þeir að láta stökkva yfir jökulsprungur, og fossaði ávallt vatn niðri í hyldýpinu, en þær voru allajafna mjóar eða þá brýr yfir þær. Komust þeir svo klaklaust að Kistufelli, og fóru.þar ofan af jöklinum. Yar það hin mesta glæfraferð, því að þar var jökullinn sandi hulinn, og hafði hann misbráðnað undan sandinum, svo að þar voru hver við annan jökulstrókar, margar mannhæðir á hæð, og stóðu svo þjett, að torvelt var að komast með klyfjahesta á milli. Jökulstrókarnir voru allir gildastir efst en mjóstir um miðjuna. Sunnan undir Kistu- felli gengu þeir af hestum sínum og gengu upp á fellið; var þar víðsýni hið bezta yfir norðurQöllin. Þaðan stefndu þeir austur á leið; þar er ljótt um að litast, sandar og stórgrýttir melar; einlægar sprænur falla þar undan jöklinum, og hverfa þær allar í sandana; fóru þeir svo austur yfir Jökulsá á Fjöllum; skoðuðu þeir þar vandlega upptök Jökulsár, og sást það þá á, að hin vestri kvísl hennar kemur ei undm Kistufelli austan- verðu, sem stendur í uppdrætti Björns Gunnlaugssonar, heldur undan Kverkfjöllum; hefir það villt Björn, að hann hefir farið norðar, og sjeð glitta í jökuleyrarnar undan jöklinum, og haldið það vera upptök Jökulsár. Síðan riðu þeir austur hjá Kverkfjöllum, og sáu upptök Kreppu, sem er austurkvísl Jök- ulsár á Fjöllum. Fóru þeir niður með lienni og náðu niður í Hvannalindir um nóttina kl. 3. Höfðu þeir farið úr Vonar- skarði um morguninn, og var það löng leið og víða torsótt. Aðu þeir um hríð í efstu grösum í Hvannalindum, en hjeldu síðan ofan í lindirnar sjálfar; um leið fóru þeir og austur að Kreppu og skoðuðu hana og sáu haga á tveim stöðum austan við hana, en svo var hún þá vatnsmikil, að ekki var hugsandi til að fara austur yfir hana til að skoða þá nákvæmar. Síðan fóru þeir aptur ofan í Hvannalindir; þar var hvannstóð mikið og melhnausar í norðurjaðri hraunsins, allt mjög stórvaxið. Landkostir í lindunum eru hinir beztu, svo að þeir höfðu

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.