Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Qupperneq 53
53
6587. ,9/s
6588. —
6589. —
6590. —
6591. —
6592. —
6593. —
6594. —
og raeð svipuðu letri. Munu þessi heilög ker varla
yngri en frá 12. öld. Frá Þönglabakkakirkju.
Beizlisstöng, steypt úr kopar, vinstri kjálka stöng, stök
og sigurnaglalaus, 1. 15,3 sm., br. mest 5 sm. Kúlan
með görðum á langveginn og spaða niður úr.
Beizlisstöng, steypt úr kopar, vinstri kjálka stöng, stök
og sigurnaglalaus, 1 15,5 sm., br. mest 4,5 sm. Kúlan
með ljónsandliti, sporöskjulöguð, stjörnudoppa á miðju.
Beizlisstöng, steypt úr kopar, hægri kjálka stöng, stök,
með sigurnagla úr járni og koparhring í. Gerðin lík
og á nr. 6588, en miðdoppan með ljónsandliti og stöng-
in öll um 1 sm. lengri.
Beizlisstengur, steyptar úr kopar, með járnmélum og er
14,8 sm. breitt á milli stanga. Kúlan með mótuðu og
gröfnu blómskrauti og blöð eru grafin á tangann nið-
ur frá kúlunni, er lagið svipað og er á nr. 6587—89,
1. 15,5 sm. Sigurnaglana vantar báða. Virðast vera
eftir Eirík Jakobsson frá Húsafelli (sbr. nr. 3748 og
4617).
Beizlisstengur, steyptar úr kopar, mélalausar og kúlu-
lausar og hinn upprunalegi sigurnagli, úr járni með
rendum koparhaus, er aðeins í annari. Gerðin er að
öllu leyti lík nr. 6590 og munu stengurnar vera eftir
Eirík Jakobsson, en þessar eru yngri að sjá.
Allar eru stengur þessar frá fyrri hluta síðustu
aldar.
Gjarðarhringja, steypt úr kopar, 1. 8,1 sm., br. 6,6 sm.,
þykt að mestu leyti 8 sm. og er hringjan mjög efnis-
mikil. Að framan er sem sporbaugur á þverveginn og
er þornið yfir hann þveran. Hringjan er með allmiklu
verki, mótuðu og gröfnu að ofan, og er þessi áletrun
á, með latn. upphafsstöfum: HVOK SEM ÞESSAR
HRIINGVR (sic) FÆR. Sennilega hafa hringjurnar
verið 4 og sinn vísufjórðungurinn á hverri. — Virðist
vera frá 17. öld. Mjög vel gerð.
Gjarðarhringja, steypt úr kopar með einkar laglegu
verki, blaðaskrauti að ofan; þorn á gagnskornu mið-
bandi. L. 6,5 sm., br. 5,8 sm., þykt 0,5 sm. að mestu.
Gjarðarhringja, steypt úr kopar, lagið svipað og nr.
6593, en ljótara og skraut nær ekkert; óvandaður frá-
gangur. L. 8,1 sm., br. 6,1 sm., þ. 0,5 sm.