Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Blaðsíða 95
Skýrsla.
I. Aðalfundur félagsins 1915.
Aðalfundur félagsins var haldinn föstudaginn 26. nóv. 1915.
Formaður minntist fyrst látinna félagsmanna: amtmanns Júlíusar
Havstcens, Torfa Bjarnasonar í Ólafsdal, yfirdómara Jóns Jenssonar
og prófessors G. A. Gustafsons í Kristjaníu.
Þvi næst lagði formaður fram endurskoðaðan ársreikning fé-
lagsins fyrir 1914 og höfðu engar athugasemdir verið við hann
gjörðar.
Þá skýrði formaður frá því, að þjóðmenjaverði hefði í fjárlög-
unum fyrir 1916 og 1917 verið veittar 300 krónur hvort árið til að
halda áfram að semja skýrslur um Þjóðmenjasafnið eftir 1876, er
hinar prentuðu skýrslur hætta, en aftur á móti hefði félaginu verið
að svo stöddu synjað um styrk til að prenta þær.
Þessu næst skýrði formaður frá ritgjörðum, er prentaðar mundu
verða í Árbók félagsins.
Eftir nokkrar umræður um félagsmál var gengið til kosninga
á embættismönnum og fulltrúum félagsins.
II. Stjórnendur félagsins.
Formaður: Eiríkur Briem, prófessor.
Varaform.: Björn M. Ólsen, dr. prófessor.
Fulltrúar: Hannes Þorsteinsson, aðstoðarskjalavörður.
Jón Þorkelsson, dr. skjalavörður.
Jón Jacobson, landsbókavörður.
Matthías Þórðarson, þjóðmenjavörður.
Pálmi Pálsson, yfirkennari.
Þórhallur Bjarnarson, biskup.
Skrifari: Pálmi Pálsson, yfirkennari.