Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Blaðsíða 50
50
6577.
6578.
6579.
6580
jörðu. Hafa þar áður fundist ýms járnbrot, eirplötur,
kvarnarsteinar 2, annar brotinn, en hinn heill; ennfr.
leifar af hlöðnum veggjum.
Mh Axarhlað úr járni, mjög eytt og slitið, breidd fyriregg,
sem er dálítið bogin, 8,5 sm., 1. niður frá auga 4,5—
4,8 sm. Augað er mjög beyglað og aflagað, virðist hafa
verið um 5 sm. að lengd upp frá blaðinu og um 2 sm.
að vídd efst. Líklega af skógaröxi. Fundið í mógröf
vestan við Miðkot í Fljótshlíð, um 2 m. í jörðu. Eru
þar raftar miklir i jörðu og glöggar skógarleifar.
— Gísli Lárusson, Stakkagerði á Vestmannaeyjum: Vað-
bútur úr leðri, 117 sm. langur og 5,5 sm. breiður. Slík-
ir vaðir voru ætíð notaðir fyrrum, en eru nú allsend-
is aflagðir. — Vaðarhæð var 12 faðmar, er leðurvaðir
voru notaðir, og var öll hæð á eyjum miðuð við vaðar-
hæð. — Síðar, eftir að farið var að nota kaðalvaði
(»trossur«) var vaðarhæð talin 15 faðmar.
— Sami: Fylalceppur úr aski, 1. 81,5 sm., nær sívalur,
þverm. 3,5—4 sm. Á neðri enda er járnhólkur, 1. 2
sm., með broddi út úr, 1. 3,3 sm., en í gegnum efri enda
er gat, 9 sm. frá endafletinum, og er ólarlykkja í, til
þess að smeygja upp á hönd sér. Notaður fyrrum við
fýlungaveiðar í fuglabjörgum, en er nú gamall. Upp-
hafsstafirnir E J S eru brennimerktir á, mark Einars
Jónssonar, nú í Norðurgarði á Vestmannaeyjum.
9/a Altaristafla úr eik með máluðum myndum, 12 (13) að
tölu, er sýna atriði úr ævi Jesú Krists. Taflan er fer-
hyrnd og með vængjum. Miðtaflan er 83 sm. að hæð
og 63,7 sm. að breidd, en vængirnir jafnháir og helm-
ingi mjórri. Að ofan og neðan á miðtöfluna er fest 8
sm. breiðum fjölum, sem taka fram yfir endafleti vængj-
anna er töflunni er lokað, og eru lítið lengri en mið-
taflan er að breidd. Miðtaflan og vængirnir eru með
strikaðri umgjörð og spjaldi í. Umgjarðirnar og hinar
fyrrnefndu fjalir hafa verið með svörtum lit, nema á
strikunum, sem hafa verið gul eða með gullslit, en þessir
litir eru nú að mestu leyti af. Umgjarðirnar eru 5,6 sm.
að breidd og 3,8 sm. að þykt, en spjöldin að eins 0,7
sm. að þykt. Samsetning og strikin á umgjörðunum
eru með gotneskri gerð. Vængirnir eru á traustum
járnlömum, sem settar eru á randirnar á umgjörðunum,