Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Blaðsíða 4
8
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
seinna um haustið rufu þeir bræður í Hólum þekjuna og losuðu um
fjölina, en Þórður Friðbjarnarson, safnvörður á Akureyri, fór gagn-
gert fram í Hóla að beiðni minni og sótti fjölina, bjó vel um hana og
kom henni með tryggri ferð suður, og kom hún í Þjóðminjasafnið
og var skrásett hinn 6. október 1966. Þykir mér sérstök ástæða til að
þakka frú Geirlaugu í Hólum og sonum hennar góðar undirtektir og
drengilega aðstoð við að koma þessum merkisgrip á öruggan samastað
í minjasafni þjóðarinnar, þar sem hann á réttilega heima.
2
Fjölin frá Hólum er úr furu, að áliti Haralds Ágústssonar, eins og
síðar segir. Hún er nú áð mörgu leyti illa til reika. Á bakhlið er hún
mjög fúin, og önnur brún hennar, sú hægri skjaldmerkjalega séð,
er einnig allmikið skert, en vinstri brún er lítið sem ekki sködduð.1
Fjölin er gráflekkótt á framhlið, og mun þar vera um gamla, inngróna
og þornaða myglu að ræða. Á stöku stað er hún einnig marin eftir
nýlegt hnjask, og í henni eru a. m. k. tveir nýlegir naglar, sem klipptir
hafa verið í sundur, þegar hún var losuð úr þekjunni. Ofan frá og
langt niður eftir hefur hún klofnað að endilöngu, og síðan hefur
fyrir löngu brotnað ofan af henni hægra megin við rifuna. Búturinn
hinum megin, vinstra megin við rifuna, hefur hins vegar brotnað
af alveg nýlega, sennilega þegar fjölin var losuð úr þakinu, og hefur
brotnað um þrjú gömul göt kringlótt, sem boruð hafa verið gegnum
fjölina af einhverjum ástæðum. Fleiri eru slík göt á fjölinni, en þau
skipa sér ekki eftir neinni reglu, að því er séð verður, og er því næsta
lítinn fróðleik af þeim að hafa. Búturinn, sem brotnað hefur ofan af
fjölinni og nú fylgir henni laus, er 95 sm að lengd og 12—13 sm að
breidd, og er það réttur helmingur af núverandi mestu breidd fjalar-
innar. Efri endi bútsins er gamalt brotsár, og verður nú ekki skyn-
samlegum getum að því leitt, hversu löng fjölin hefur upprunalega
verið í þann enda. Neðan á fjölina vantar einnig, því að einnig þar
endar hún í gömlum brotsárum, en sennilegt virðist af skurðmunstr-
inu, að ekki vanti nema lítið á þennan enda (sjá 3.—4. mynd).
Svo sem sjá má af ofanskráðu, vantar nú á báða enda fjalarinnar.
Eins og hún er nú, er hún 230 sm að lengd. Breidd hennar er nú
i 1 þessari grein er hægri og vinstri ætíð notað i skjaldmerkjalegri (heraldiskri)
merkingu, þ. e. hugsað er írá hlutnum sjálfum, en ekki miðað við áhorfanda.