Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Blaðsíða 129
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1966 133
margir hjálpuðu til við einstakar jarðir og gáfu góð ráð og veittu
ýmsa fyrirgreiðslu.
Ótalið er þó það sem mestu máli skipti, að Handritastofnun Is-
lands léði, fyrir orð þjóðminjavarðar, styrkþega sinn, Svavar Sig-
mundsson cand. mag., til þess að vinna að endurskoðunarstarfinu.
Kom hann til starfa 1. júní og var til ársloka að undanteknum einum
mánuði, sem hann dvaldist í Færeyjum. Á þessum tíma fór Svavar yfir
ski'ár úr Suður-Þingeyjarsýslu, Borgarfjarðarsýslu og Mýrasýslu og
bjó undir endurskoðun bæ fyrir bæ, aflaði frumgagna frá heimildar-
mönnum þar sem þess var kostur og sætti hverju færi sem bauðst
til að ná til heimildarmanna. Fór hann meðal annars sérstaka ferð
norður í Þingeyjarsýslu í þessu skyni og varð vel ágengt. Þjóðminja-
safnið kann forstö'ðumanni Handritastofnunar Islands, prófessor
Einari Ól. Sveinssyni, þakkir fyrir að hafa veitt samþykki sitt til
að starfsmaður stofnunarinnar ynni þetta verk, svo og Svavari Sig-
mundssyni fyrir vel unnið starf.
Auk endurskoðunarstarfsins ber þess að geta, að Jóhann Hjaltason
skilaði örnefnasafni úr Sléttuhreppi, Pétur Sæmundsen úr nokkrum
hluta Austur-Húnavatnssýslu, og Jóhannes Óli Sæmundsson úr Dal-
víkurhreppi, Ólafsfirði og Siglufirði.
Söfnun þjóðlaga og þjóbfræSa.
Hugvísindadeild Vísindasjóðs veitti safninu kr. 50.000.00 til söfn-
unar þjóðlaga og þjóðfræða, og Handritastofnun Islands lagði fram
kr. 30.000.00 í sama skyni. Var þessu fé varið til að styrkja Hallfreð
Örn Eiríksson cand. mag. til áframhaldandi söfnunar á þessu sviði.
Fór hann enn sem fyrr víða og gerði segulbandsupptökur. Skilaði hann
fyrst 19 segulbandsspólum, sem gerðar voru í Reykjavík og Borgar-
firði, en síðan 17 spólum, aðallega með sögum, sem upp voru teknar
á Akranesi, í Austur-Skaftafellssýslu og Suður-Múlasýslu.
Enn fremur kostaði safnið ferð frú Helgu Jóhannsdóttur til Rauða-
sands, þar sem hún tók mikið upp af sálmasöng og nokkuð af öðrum
lögum, einkum hjá Ivari ívarssyni og systur hans. Fékk safnið afrit
af öllum þessum upptökum.
ViShald gamalla bijgginga.
Ekkert verulega stórt átak var gert á þessu sviði á árinu. Ber
þó helzt að telja, að lokið var að öllu við viðgerð Viðeyjarkirkju,
enda var hún langt komin á síðastliðnu ári. Má þetta teljast góður