Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 15
FORN ÚTSKURÐUR FRÁ HÓLUM I EYJAFIRÐI
19
Hringaríkisstíl og sést meðal annars mjög greinilega á Flatatungu-
fjölum (8. mynd). Aftur á móti sést það ekki á því, sem varðveitt
er af útskurði Möðrufellsfjala, þó að blaðendarnir með uppundningn-
um eigi sér hliðstæðu þar. Hið samhverfa fyrirkomulag blaðanna á
sér ekki samsvörun á Möðrufellsfj ölum, og reyndar er hún víst ekki
svo algeng meðal Hringaríkisminja eða í rúnasteinastíl. En lítill vandi
er þó að benda á dæmi, þar sem greinilega vottar fyrir svipuðu, þótt
hvergi nemi blöðin eins rækilega saman að ofan og á Hólafjölinni, en
það kynni að vera af því að flöturinn krafðist þess eða stuðlaði að
því. Ég nefni til dæmis samhverfu blöðin í krikunum milli álmanna
á krossi á rúnasteini frá Landshammar í Svíþjóð, sbr. áðurnefnda
grein frá Mageroy, bls. 59. Ég nefni hina frægu bronsflaug frá Hegg-
ens-kirkju í Noregi, sjá A. W. Brogger, Bronsefloiene fra Heggen og
Tingelstad kirker,Norske oldfunn V, Oslo 1925, fig. 2, bls. 3, neðst á
myndinni til vinstri. Ég nefni jafnvel blaðabekkina neðarlega á Dynna-
steininum, sem eftirlíking er af hér 1 Þjóðminjasafni, og mörg fleiri
dæmi mætti nefna, sem sýna ærinn skyldleika (9.—10. mynd). Það
er sem sagt enginn vafi á, að útskurðurinn á Hólafjölinni er af ætt
Hringaríkisstíls, en líklega má segja, að verkið sé öllu kraftmeira en
vant er í þeim stíl, en það er af því hve dj úpt línurnar eru ristar.
Ekki er auðvelt að benda á hliðstæðu við hina einkennilegu mynd
eða uppdrátt, sem er ofan við blöðin og helzt minnir á fangamark í
fljótu bragði. Eins og þegar er sagt, hygg ég helzt að þetta sé rist
þarna af því áð listamanninum hafi fundizt flöturinn kalla á ein-
hverja uppfyllingu, en kvistirnir tveir eru að líkindum aðeins sérstök
útfærsla af þverböndum þeim, sem algeng eru í Hringaríkisstíl og
sjást m. a. á Heggensflauginni, svo að eitthvað sé nefnt.
Á Hólaf jölinni eru elcki eins fornleg stílatriði og á Möðrufellsfjölum,
og ekki mundi yngri Jalangursstíll vera nefndur í sambandi við hana.
Samt tel ég ekki ráðlegt að halda því fram, að hún sé yngri en þær,
hún hlýtur að vera mjög frá sama tíma, svo mikill sem skyldleikinn
er. En er hún þá ef til vill ein af þeim? Er hún skorin af sama manni,
og hefur hún verið í sömu byggingu og þær? Ekkert er í sjálfu sér
því til fyrirstöðu, að hún kynni að vera verk sama manns, en í raun-
inni er fánýtt að halda því fram. Hún getur alveg eins verið verk
samtímamanns hans, sem skar út í sama stíl. Og sitthvað finnst mér
benda til þess, að hún sé ekki ein af Möðrufellsfjölunum, sé ekki úr
sama húsi. Þrátt fyrir hinn nána skyldleika eru nokkur atriði, sem
greina hana frá. I fyrsta lagi er skurðurinn á Hólafjölinni miklu þrótt-
meiri en á Möðrufellsfjölunum, það eru notaðir sterkari drættir. í