Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Side 41
HALLDÓR J. JÓNSSON
MYNDIR AF JÖRUNDI HUNDADAGAKÓNGI
Hinn 30. júlí 1949 keypti Þjóðminjasafni'ð litla andlitsmynd,
10x6,5 cm að stærð, málaða með olíulitum. Við það tækifæri gerði
seljandinn, frú Sigríður Holbeck, svofellda grein fyrir uppruna mynd-
arinnar: „Olíumáluð mynd af Jörgen Jörgensen (1780—1845). Mynd
þessa fékk ég ca. 1915 hjá systursyni hans, Christian Fredr. Wilh.
Nees í Kaupmannahöfn. Kvað hann myndina vera eftir móðurbróður
sinn sjálfan og hefði hann málað hana fyrir framan lítinn spegil,
þegar hann var nýkominn frá íslandi, hefði hann gert hana svo
spaugilega sem hún er, að því er búning snertir og hár, málað hana
sem einskonar dýrlingsmynd, í hvítum hjúp, méð pálmagrein í hendi
og hárið sem geisla út frá höfðinu; átti þetta að tákna sakleysi hans
og kærleiksþel til íslands, þótt svo hefði farið sem fór fyrir honum
í afskiptum af stjórnmálefnum þess. Nees hafði fengið myndina hjá
móður sinni, Wilhelmine, eða eftir hana og hafði hún sagt honum
frá því, hvernig þessi mynd af bróður hennar væri til komin.“
Þessi greinargerð Sigríðar er eina beina heimildin fyrir því, að
málverk þetta sé sjálfsmynd Jörgens Jiirgensens, danska ævintýra-
mannsins, sem er kunnari á íslandi undir nafninu Jörundur hunda-
dagakóngur. Rétt er að geta þess, að faðir Sigríðar, Matthías Þórðar-
son þjóðminjavörður, véfengdi aldrei þessa skýringu á uppruna mynd-
arinnar og hafði jafnan fyrir satt, að hún væri af Jörundi. Verður
álit þessa merka fræðimanns að teljast þungt á metunum, þar sem
ætla má, að hann hafi kunnað góð skil á ferli myndarinnar. Óneitan-
lega virtist hæpið, að systursonur Jörundar gæti verið á lífi árið 1915,
enda kom á daginn við nánari eftirgrennslan, að frændsemi Christians
Fredr. Wilh. Nees við Jörund hefur ekki verið eins náin og Sigríður
taldi. Samkvæmt upplýsingum frá Bjorn Fabricius, skjalaverði í
danska ríkisskjalasafninu (í bréfi til þjóðminjavarðar í nóv. 1967),
hefur Wilhelmine Sophie Frederikke, móðir C. F. W. Nees, ekki
verið systir Jörundar, heldur bróðurdóttir hans. Eftir því sem næst