Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 60
64
ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS
unum er: Grænlendinga saga — Guðmundar saga hin elzta — Kon-
ungsskuggsjá. Að aldri handritanna, sem varðveita þessar sögur eða
heimildir, verður síðar vikið. — Áður en lengra er haldið og reynt að
skýra alla þá atburði, sem raktir eru að framan, er vert að athuga
ritgerð Japetus Steenstrups: Hvad er Kongespeilets „Havgjerdinger“?
II.
Eins og vænta má af jafnlærðum vísindamanni og Steenstrup var,
kemur hann mjög víða við í ritgerð sinni, þótt höfuðmarkmið hans
sé að fjalla um hafgerðingar Konungsskuggsjár. Hann reynir að
færa sönnur á, að lýsing hennar á þessu fyrirbrigði sé ekki tilbún-
ingur, heldur styðjist hún í raun og veru við atburð, sem hafi átt
sér stað. Nefnir hann ýmis dæmi, sem eiga að renna stoðum undir
skoðun hans, sum nærtæk í tíma og rúmi, en önnur frá fjarlægum
stöðum, þar sem vitað er, að orsakir náttúruhamfara eru með allt
öðrum hætti en tíðkast nyrzt í Atlantshafi, t. d. norður í Trölla-
botnum. Sá atburður, sem Steenstrup telur verðan mestrar athygli
og honum virðist stappa nær rétthermi höfundar Konungsskuggsj ár,
eru flóðöldurnar þrjár, sem bar á land í Danmörku 5. júní 1858. Það
voru „taarnhoie Bolger", sem æddu langt upp á ströndina og náðu
yfir stórt svæði. Sums staðar fylgdu þær nær því hver annarri, en á
öðrum stöðum leið nokkur tími á milli þeirra, allt að tíu mínútur.
Af þessum atburði eru varðveittar margar samtíma frásagnir, sem
ekki er að efa að séu réttar. Sums staðar var sjór dauður, þegar þetta
bar við, en annars staðar fylgdi þessum atburði þrumuveður og haf-
ólga. Steenstrup lítur svo á, að hræringar á hafsbotni hafi verið or-
sök þessa fyrirbrigðis.
Steenstrup telur ekki vafa leika á því, að hafgerðingarnar, sem
lýst hafi verið í Hafgerðingadrápu og þær, sem Konungsskuggsjá
greini frá, sé sami atburðurinn. Og jafnframt segir hann: „Konge-
speilets „Havgjerdinger" i Gronlandshavet ere de ved en uhyre stærk
Jordrystelse fremkaldte voldsomme Havbolger imod den sydgron-
landske Kyst, og dette Havsskjælv fandt Sted 986“.1
Ég treysti mér ekki til þess að hafna að öllu leyti þessari niður-
stöðu Steenstrups. Hins vegar virðist au'ðsætt, að á fyrirbrigðið haf-
gerðingar verður að líta frá fleiri hliðum en hann gerir og þá jafn-
i Aarb. f. n. Oldkyndighed og Historie 1871, bls. 165.