Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Page 67
ÞÓR MAGNÚSSON
GAMLI BÆRINN Á VÍÐIVÖLLUM
Á Víðivöllum í Blönduhlíð í Skagafirði stóð fram undir síðustu
aldamót, og reyndar að nokkru leyti lengur, gamall torfbær, sem
sagður er hafa verið með stærstu og reisulegustu bæjum þar um
slóðir. Hann var þá álitinn ævagamall og aldur hans ekki þekktur
með neinni vissu. Lilja Sigurðardóttir í Ásgarði, sem fædd er og upp-
alin í þessum bæ, man hann mjög vel og kann gerla að segja frá
honum, og skráði ég eftirfarandi lýsingu af bænum eftir fyrirsögn
hennar sumarið 1965, og á lýsingin við bæinn eins og hann var á síð-
ustu áratugum 19. aldar. Einnig notfærði ég mér nokkuð upplýsingar,
sem Kristján Eldjárn hafði aflað áður hjá Lilju um bæinn, en teikn-
ingarnar, sem fylgja, gerði ég eftir fyrirsögn Lilju og að nokkrti
eftir frumdráttum hennar. Þær mega kallast réttar í aðalatriðum, svo
sem stærð og staðsetning einstakra húsa, en um smærri atriði má
búast við, að einhverju kunni að skeika.
Allmiklum vafa er undirorpið, hve gamall Víðivallabærinn hefur
verið, en að líkindum hefur hann verið frá sfðari hluta 18. aldar.
Reyndar telur ein heimild bæinn byggðan um 1680x, önnur telur hann
frá því um 17722, og sú þriðja segir hann vera frá 19. öld3. Vitað er,
að eitt húsið, „nýja stofa“, var byggt 1772, en að öðru leyti gæti
bærinn verið nokkru eldri. Þó er hugsanlegt, að baðstofan hafi einnig
verið frá því ári. En nýjustu rannsóknir í íslenzkri húsagerð hafa
leitt í ljós, að bæjagerð þessi er varla eldri en frá um miðja 18. öldh
En vafalaust hefur bærinn staðið óbreyttur nær alla 19. öld, og gefur
hann því allgóða mynd af húsakvnnum á norðlenzku höfuðbóli á
þeim tíma.
Víðivellir eru mikil jörð og hefur alla tíð verið þar mikill búskapur.
Um tíma var þar sýslumannssetur og er Þorsteinn Þorleifsson fyrsti
sýslumaður, sem vitað er að búið hafi á Víðivöllum. Dóttir hans var
Þrúður, er giftist Birni biskupi Þorleifssyni, og eftir lát hans bjó
hún á föðurleifð sinni, Víðivöllum, fram til 1780. Siðan ríkir nokkur