Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Qupperneq 71
GAMLI BÆRINN Á VlÐIVÖLLUM
75
kenndur við Kasthvamm í Suður-Þingeyjarsýslu en bjó einnig víðar,
meðal annars í Brimnesi og Lóni í Viðvíkursveit. Jón lærði málara-
list í Kaupmannahöfn og er enn til allmikið af verkum hans, einkum
kistlum, sem bera glögg einkenni listar Jóns. Aðaluppistaða skraut-
verksins eru undnir krókar eða kræklur, sumir ekki ósvipaðir söng-
táknum, í dökkgráum fleti, og er ekki vitað til að neinn annar ís-
lenzkur málari hafi haft viðlíkan stíl. Er því trúlegast, að Jón hafi
málað stofuna, hvort sem hann hefur átt nokkurn þátt í smíð hennar
eða ekki. Vitað er, að Jón skreytti hús, því að hann málaði Hóladóm-
kirkju að innan í upphafi og má glöggt sjá stílbrögð hans á milli-
gerðinni milli kórs og kirkju7.
í „gömlu stofu“ voru oft haldnar veizlur, til dæmis brúðkaups-
veizlur, ogþar stóð brúðkaupsveizla foreldra Lilju, Guðrúnar Péturs-
dóttur og Sigurðar Sigurðssonar, en þau giftu sig á gamlársdag 1872.
Öllum þótti stofan merkilegt hús, og Forngripasafnið hafði falazt
eftir henni, en þeir feðgar á Víðivöllum vildu ekki sjá af henni burtu,
og varð hún því kyrr, þar til sá tók hana, sem ekki þurfti leyfis áð
spyrja.
Göngin lágu austur úr bæjardyrum. Þau voru þriggja álna breið
og um tólf álna löng til austurs, mjög há og krossreist. Þverbitar voru
í þeim í veggjarhæð, og á þeim geymdi Sigurður Sigurðsson borðvið,
sem hann átti alltaf til, enda hjálpaði hann oft nágrönnum sínum um
spýtur, er á lá, til dæmis í líkkistur. Svo voru göngin há, að gamli
Jón á Gilsbakka reið einu sinni drukkinn inn öll göng og rak sig
hvergi upp undir.
Fyrir aftan „gömlu stofu“ var búr, sem foreldrar Lilju höfðu, en
tvíbýli var á Víðivöllum á síðustu áratugum aldarinnar, og bjuggu
foreldrar Lilju á móti föðurforeldrum hennar. Innsta stafgólfið í
búrinu var afþiljað, og var þar inni búrhilla, rekkur fyrir leirtau
og bollaparaskápur. Frammi í búrinu stóðu tunnur með veggjum
og strokkur með virkjum við austurvegg. Þetta búr náði lengra til
norðurs en „gamla stofa“ og einnig örlítið lengra til suðurs.
Göngin þverbeygðu til suðurs við búrhornið, og var annað búr
sunnan þeirra, gagnvart hinu fyrra. Þetta var búr föðurforeldra Lilju,
Sigurðar Jónatanssonar og Sigurlaugar Gísladóttur, og var gengið
í það að austan. Það var 9 álnir á lengd og 6 á breidd. Búrhilla var að
sunnanverðu og yfir henni diskarekkur, en að norðanverðu voru
tunnur og um miðjan vesturvegg strokkur með virkjum. Búrið náði
lengra til norðurs en skálinn, en ekki eins langt suður og hann.
Göngin enduðu við dyr „nýju stofu“, sem svo var nefnd, og þar