Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Page 93
ICUMLATÍÐINDI
97
3. mynd. AfstaSa hlöðu og grafar á Brandsstöðum. — Plan showing situation of
grave in relation to newly built barn.
Rannsókninni var hagað þannig, að grafið var frá hlöðuveggnum,
enda kom þá brátt í ljós, að þarna var eftir um það bil helmingur af
hrossgröf, sem sást mjög greinilega, en hinn helminginn hafði skurð-
grafan eyðilagt, og úr honum voru hrossbein þau og mannabein, sem
Sigmar kom með á safnið. f beinu framhaldi af hrossgröfinni fann ég
svo mannsgröf, sem grafan hafði ekkert hróflað við, en því miður var
þar allt umhverft frá fyrri tíð eins og í hrossgröfinni.
Kuml þetta á Brandsstöðum er þá í stórum dráttum þannig: Ofan
í holtið hefur verið grafin gröf, nokkuð reglulega aflöng, 170 sm að
lengd, um 1 m breið efst, en mjókkandi þegar neðar dró, um 70 sm
á dýpt. Það er eftirtektarvert, að gröfin snýr ekki út og suður eins og
7