Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 113
GUÐBRANDUR SIGURÐSSON,
Svelgsa
VATNAHEIÐI Á SNÆFELLSNESI
Höfundur þessarar greinar, Guðbrandur Sigurðsson hreppstjóri á Svelgsá í Helga-
fellssveit, var þekktur fræðaþulur og reyndist einn bezti heimildarmaður þjóðhátta-
skráningar Þjóðminjasafnsins, meðan hans naut við. Hann var fæddur 9. nóv. 1872
og dó 18. jan. 1962. 1 Árbók 1955—1956 birtist grein eftir Guðbrand um eyðibýli
í Helgafellssveit. Skömmu fyrir andlát sitt sendi hann enn grein þá, sem hér fer
á eftir, og er hún að vissu leyti I tengslum við hina fyrri, m. a. er í fyrri greininni
fjallað nánar um eyðibæi þá, sem nefndir eru lauslega í þessari. I greininni er
fróðleikur um fornar leiðir milli héraða, en það er atriði, sem mikilsvert er að festa
á bók, en að öðru leyti sýnir greinin staðfræðilegar athuganir og áhuga höfundarins,
og fer vel á að Árbók birti nú greinina, sem vera mun eitt síðasta ritverk þessa
góða samstarfsmanns um skráningu íslenzkra þjóðhátta.
Ritstj.
Vatnaheiði heitir allstórt heiðarland í Snæfellsnesfjallgarðinum,
og liggur þjóðbrautin Kerlingarskarð yfir hana austanverða. Heiðin
er að miklu leyti umgirt háum fjöllum. Að austan er Kerlingarfjall,
Grímsfjall og hálendið suður af Grímsfjalli. Að sunnan Seljafell,
Urðarmúli og Snæfellsnesshálendið. Að vestan Nípufjöll. En að norð-
an Hafrafell og fjall, sem Horn heitir.
Austurhluti Vatnaheiðar er að meirihluta brunasandar og uppblás-
ið land. En er vestar dregur á heiðina, taka við ágæt beitilönd, víða
með fjölbreyttum og þroskamiklum gróðri. Vestast á heiðinni liggur
hinn undurfagri og frjósami Seljadalur. Á heiðinni eru tvö allstór
fiskivötn. Það austara heitir Baulárvallavatn. Hitt vatnið liggur á
Seljadal og er nú ranglega nefnt Hraunsfjarðarvatn, en heitir réttu
nafni Hjarðarvatn, og verður það hér nefnt svo. Til gamans skal hér
tekin upp stutt frásögn úr Landnámu, af atburði, sem gerðist í tíð
landnámsmannsins í Hvammsfirði. Sagan sýnir nafn vatnsins, hvað
sem öðru líður:
„Auðun stoti, son Vála ins sterka, nam Hraunsfjörð allan fyrir
ofan Hraun, á milli Svínavatns og Tröllaháls. Hann bjó í Hrauns-
firði og var mikill fyrir sér og sterkur. Auðun átti Mýrúnu, dóttur
Maddaðar írakonungs. Auðun sá um haust, að hestur apalgrár rann