Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Qupperneq 128
132
■ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Tómasson einkum unnið að því með viðtölum við fólk. Hins vegar
hefur ekki gefizt tími til að gera efnisskrár yfir allt þetta efni, og
hefur reyndar frá upphafi hlaðizt upp mikið af svörum og öðru efni,
sem ekki hefur verið gerð efnisskrá yfir, sem er þó nauðsynlegt að
hafa, er kemur til að nota heimildasafnið. I árslok voru 1290 númer
skráð í þjóðháttasafnið.
Yfir sumarið lágu störf niðri á Þjóðháttadeild, enda fór þá mikill
tími í fornleifarannsóknir í Hvítárholti. Var á þessu sumri grafinn
upp skáli skammt frá hinum fyrra. Hann er af greinilegri víkinga-
aldargerð, og reyndist hafa verið útbygging við norðurhlið hans. í
skálanum fannst allmargt smáhluta, og er hinn merkasti þeirra róm-
verskur koparpeningur frá árunum 275—276 e. Kr. Ekki tókst að
ljúka rannsóknunum í Hvítárholti á árinu, en þó virðist að ekki
muni mikið vera eftir. Er stefnt að því að ljúka þeim sumarið 1967.“
Við þessa greinargerð Þórs er ekki öðru en því að bæta, að Lúðvík
Kristjánsson hélt áfram starfi sínu við ritverkið „íslenzkir sjávar-
hættir“, eins og þegar er nefnt í þessari skýrslu, en það er að nokkru
leyti unnið í tengslum við Þj óðháttadeild.
Örnefnas öfnun.
I febrúar var sú ákvörðun tekin að vinna eftir megni að því að
endurskoða þær örnefnaskrár, sem til eru í safninu og skráðar hafa
verið á undanförnum árum. Er ætlunin að bera sem flestar skrár
undir heimildarmenn að nýju og fá frá þeim viðbætur og leiðrétt-
ingar eftir þörfum og staðfestingu á, að rétt sé með farið í hvívetna.
Síðan verða skrárnar vélritaðar eftir því sem tími og peningar leyfa.
Reynt var að fá sem flesta menn til samstarfs um þessa endurskoð-
un, og mörg öfl voru sett í hreyfingu. Þjóðminjavörður beitti sér
einkum við endurskoðun skráa úr Dalasýslu og hafði í því sambandi
upp á frumritum Breiðfirðingafélagsins að skrám þaðan, gerðum
fyrir 20—30 árum. Lauk hann við endurskoðun nokkurra hreppa,
en nokkuð er þó eftir, sem ekki verður endurskoðað nema méð því að
ferðast um staðina. Ari Gíslason lauk við að endurskoða Skilmanna-
hrepp og Innri-Akraneshrepp og byrjaði nokkuð á öðrum hlutum
Borgarfjarðar- og Mýrasýslu. Þórður Tómasson tók að sér að endur-
skoða Vestur-Skaftafellssýslu og fór langt að ljúka því verki, en þó
er því ekki alveg lokið. Jóhannes Óli Sæmundsson endurskoðaði Sval-
barðsstrandarhrepp og Grýtubakkahrepp í Suður-Þingej’-jarsýslu. Ein-
ar G. Pétursson stud mag. aðstoðaði við endurskoðun í Dalasýslu og