Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Page 1
Skýrsla
um nokkrar tilraunir til jurtaræktunar á Islandi,
eptir
landlækni Schierbeck,
formann „hins íslenzka garðyrkjufjelags11.
Enda þótt tilraunir mínar, er jeg hef gjört hjer
á landi að því er jurtaræktun snertir, sjeu eigi enn þá
leiddar til lykta og verði það ekki einu sinni fyrst um
sinn, finn jeg þó hvöt hjá mjer til þess nú þegar að
koma með dálitla skýrslu um tilraunir þær, er jeg hef
gjört á íslandi í þá átt á hinum síðustu 3 árum, jafn-
framt og jeg vona að jeg með því veki áhuga bæði
á áframhaldi tilrauna þessara og vexti og viðgangi
garðyrkjunnar á íslandi í heild sinni. ]?ó að vjer eigi
getum vonazt eptir því, að garðyrkjan taki hjer á landi
öðrum eins feikna-framförum eins og hefur átt sjer
stað í Noregi á seinustu 30 til 40 árum, þá er það
þó engum efa bundið, að hjer á landi má með elju og
þolgæði gjöra mjög mikið í þessu efni, er án alls efa
er þess vert, að það eigi sje virt að vettugi, þar eð
því er svo háttað, að garðyrkjan getur, svo furðu
gegnir, aukið fjölda afurða þeirra, er landið gefur af
sjer, og sömuleiðis verð þeirra.
Tímarit hins íslenzka Bókmenntafjelags. VII. 1