Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 10
10
með -}- 14 stiga sumarhita á Réaumur og 8 stiga
vetrarkulda á sama hitamæli er í þessu efni óendan-
lega betur farin en Reykjavik með 9,6 stiga sum-
arhita á Réaumur og — 3,3 stiga vetrarkulda á sama
mæli; en Moskva hefur þó sama meðalhita fyrir allt
árið og Reykjavík. — Menn hafa sagt, að hin mikla
gnótt af birtu, sem jurtunum býðst á sumrin í þeim
löndum, er liggja norðarlega á hveli jarðar, þar sem
sólin er líka á lopti mikinn hluta nætur, væri mjög mikil
hlunnindi fyrir jurtalífið. |>að er fjarri mjer að bera á
móti því, að birtan er mjög svo mikilsverð fyrir þrosk-
un allra æðri jurta, og eins efast jeg ekki um hin
furðanlegu áhrif, sem hinar björtu nætur geta á öðrum
stöðum haft á það, hversu fljótt jurtirnar þroskast;
en þó verð jeg að játa, að jeg hef enn þó eigi hjer í
Reykjavík orðið var við nein veruleg áhrif hinna björtu
nátta í þá átt, að flýta fyrir jurtavextinum. Menn
m ega eigi gleyma því, er kemur til hinna æðri jurta,
að þá er ljósið eigi nema eitt af skilyrðunum fyrir
vexti þeirra og viðgangi, en að það verður alveg þýðing-
arlaust fyrir vöxtinn, er jurtunum eigi jafnframt býðst
hæfilegur hiti og raki. En það eru einmitt þessi skil-
yrði, og einkum og sjer í lagi hitinn, sem hefur vant-
að hjer langt fram í júlímánuð. Jeg get þess til dæm-
is, að hjer í garðinum naut „karse (Lepidium sativum)
ljóssins allan júnímánuð og júlímánuð, en óx samt
mjög seint. Hann kom upp í byrjun júnímánaðar og
var í lok júlímánaðar ekki nema 4 þumlungar á hæð,
þar sem jurt þessi ella, eins og alkunnugt er, vex mjög
fljótt, ef hún fær nokkurn hita; frá júlímánaðarlokum
og allan ágústmánuð út óx hún vel, þótt næturnar
væri orðnar dimmar, með þvf hún fjekk þó nokkurn
hita, og varð 22—26 þumlungar á hæð. Eins og sum-
arið var framan af árið sem leið, er sjaldan kom skúr
úr lopti, svo að moldin var opt þur eins og aska, voru